Flöt niðurfærsla er dýrasta leiðin Jón Hákon Halldórsson skrifar 10. nóvember 2010 17:00 Sigurður Snævarr hagfræðingur er formaður sérfræðingahópsins.
Flöt niðurfærsla skulda er mjög dýr aðgerð og skilar í raun svipuðum eða minni árangri og aðgerðir á borð við hækkun vaxtabóta eða sértæka skuldaaðlögun. Þetta er mat sérfræðingahóps sem hafði það að markmiði að meta kostnað af ýmsum þeim leiðum sem í umræðu hafa verið til lausnar á skuldavanda heimilanna. Samkvæmt niðurstöðum nefndarinnar myndi flöt niðurfærsla skulda um 15,5% kosta 185 milljarða króna, niðurfærsla skulda miðað við upphaflega lánsfjárhæ myndi kosta 155 milljarða króna og niðurfærsla skulda að 110% af verðmæti fasteigna myndi kosta 89 milljarða á ári. Lækkun vaxta myndi kosta 24 milljarða á ári og hækkun vaxtabóta myndi kosta 2 milljarða á ári. Sérfræðingahópurinn telur að engin ein leið megni að koma öllum til bjargar. Það sé líka ljóst að ekki verður öllum bjargað, en þá reyni á að fjármálastofnanir, ríki og sveitarfélög nái saman um að húsnæðisúrræði, meðal annars með því að setja á fót öflugt kaupleigukerfi. Sérfræðingahópurinn bendir alls á níu leiðir sem hægt væri að fara við leiðréttingu á skuldastöðu heimilanna. Þær eru eftirtaldar: 1. Flata niðurfærslu skulda um 15,5%. 2. Niðurfærslu skulda m.v. upphaflega lánsfjárhæð 3. Niðurfærslu skulda að 110% af verðmæti fasteigna 4. Niðurfærsla skulda að 110% af fasteignastöðu stiglækkandi 5. Hækkun vaxtabóta 6. Lækkun vaxta á fasteignalánum í 3% 7. Tveggja þrepa nálgun (sölu-/kaupréttur) 8. LÍN leiðin 9. Eignarnám og niðurfærsla skulda með gerðardómi.
Mest lesið Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira