Óskar Bjarni: Höfðum alltaf góð tök á leiknum Stefán Árni Pálsson skrifar 2. desember 2010 22:12 Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfari Valsmanna.
Óskar Bjarni Óskarsson, annar þjálfari Valsmanna, var sáttur með stigin í kvöld og ánægður með leik sinna manna. Valur landaði mikilvægum sigri í botnbaráttunni í kvöld en þeir báru sigur úr býtum gegn Selfyssingum 26-25 í 9.umferð N1-deildar karla en leikurinn fór fram að Hlíðarenda. „Mér fannst við hafa ákveðin tök á leiknum allan tíman. Varnarleikurinn hjá okkur var virkilega góður í fyrri hálfleik en náðum ekki að halda áfram á sömu braut í þeim síðari". „Selfyssingar náðu að nýta sér veikleika okkar og komust allt of mikið inn í leikinn í lokin. Sóknarleikur okkar er hlutur sem við verðum að vinna í og bæta okkur töluvert á því sviði," sagði Óskar. „Flestir leikmannanna áttu mikið inn í leiknum en ég þarf jafnvel að dreifa álaginu meira og leyfa fleiri strákum að spreyta sig. Úrslitin segja kannski ekki alla söguna en mér fannst þessi sigur aldrei í hættu". Júlíus Jónasson, fyrrverandi þjálfari Vals, sagði starfi sínu lausu í gærkvöldi en það virtist ekki hafa mikil áhrif á liðið. „Þetta var töluvert áfall fyrir hópinn og leiðinlegt fyrir félagið. Hópurinn er jákvæður en ég get ekki sagt hvernig við eigum eftir að taka á þessu. Við verðum bara að halda áfram að bæta okkur og sjá svo til hvar við endum en við erum áfram í bullandi fallbaráttu,"sagði Óskar Bjarni sáttur eftir sigurinn í kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira