Tónlist

Íslenskt í beinni hjá Kerrang!

Sign skartar nýjum trommuleikara á sínum fyrstu tónleikum í langan tíma í kvöld.
Sign skartar nýjum trommuleikara á sínum fyrstu tónleikum í langan tíma í kvöld.
Hljómsveitirnar Sign, Cliff Clavin, For a Minor Reflection, Ourlives, Noise, Ten Steps Away og Nevolution, koma fram á Localice-tónleikum á Nasa í kvöld. Tónleikarnir, sem eru þeir fyrstu hjá Sign í langan tíma, eru haldnir í samstarfi við rokktímaritið Kerrang! og verða þeir sýndir í beinni útsendingu á heimasíðunni Kerrang.com.

„Við erum búsettir í Bretlandi líka og höfum verið að vinna fyrir iTunes. Við töluðum við Kerrang! því okkur fannst góð hugmynd að sýna íslensk bönd úti án þess að þau þurfi að fljúga út. Þetta er eitthvað sem hefur ekki verið gert mikið áður,“ segir Arnar Helgi Hlynsson hjá Localice. „Þetta er mjög gott tækifæri fyrir þessi bönd. Þau hafa verið að spila mörg á Kerrang!-kvöldum á Airwaves. Þeir virðast hafa einhvern áhuga á íslensku rokki og metal.“

Localice hefur unnið mikið við framleiðslu á myndefni og upptökum fyrir tónlist bæði í Bretlandi og á Íslandi. Sex myndavélar á vegum fyrirtækisins verða á Nasa í kvöld og geta einungis þeir sem eru búsettir í Bretlandi séð tónleikana á Kerrang!-síðunni.

Stefnt er að því að svipaðir tónleikar verði haldnir á nokkurra mánaða fresti í framtíðinni. Húsið opnar klukkan 20.30 og tónleikarnir hefjast stundvíslega klukkan 21. - fb





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.