Töluvert dregur úr neikvæðri afkomu ríkisins 8. desember 2010 09:09
Í þeim ársfjórðungi var tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 26 milljarða króna eða sem nemur 6,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársfjórðungsins og 15,8% af tekjum þess. Á sama tíma 2009 var tekjuafkoman neikvæð um tæplega 38 milljarða króna eða 9,8% af landsframleiðslu. Þetta kemur fram í Hagtíðindum í efnisflokknum þjóðhagsreikningar um fjármál hins opinbera á 3. ársfjórðungi 2010 sem birt hafa verið á vefsíðu Hagstofunnar. Fyrstu níu mánuði 2010 reyndist tekjuafkoma hins opinbera neikvæð um 76 milljarða króna eða 6,7% af landsframleiðslu þessa tímabils, en til samanburðar var tekjuafkoman neikvæð um ríflega 106 milljarða króna á sama tíma 2009 eða 9,6% af landsframleiðslu. Tekjur hins opinbera námu rúmlega 484 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins samanborið við um 452 milljarða króna árið áður og er hækkunin milli ára um 33 milljarðar króna eða 7,2%. Sem hlutfall af landsframleiðslu tímabilsins námu tekjurnar 42,4%. Mest er hækkunin í sköttum á vöru og þjónustu og tryggingagjöldum sem skiluðu rúmlega 34 milljörðum króna meiri tekjum á tímabilinu en 2009. Aðrar tekjur, aðallega vaxtatekjur og sala á vöru og þjónustu, lækkuðu hins vegar um ríflega 9 milljarða króna. Útgjöld hins opinbera reyndust ríflega 561 milljarður króna á sama tíma eða sem svarar til 49,2% af landsframleiðslu tímabilsins og hækkuðu um 0,7% milli ára. Stærstu útgjaldaliðirnir eru laun sem áætluð eru um 169 milljarðar króna á tímabilinu, kaup á vöru og þjónustu 136 milljarðar króna og félagslegar tilfærslur til heimila 87 milljarðar króna. Þá er talið að vaxtagjöld hins opinbera verði 84 milljarðar króna fyrstu 9 mánuði ársins (og hækki um 29%) og opinber fjárfesting 29 milljarðar króna (og lækki um 31%). Aðrir útgjaldaliðir hafa staðið í stað eða lækkað í krónum talið. Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 568 milljarð króna í lok 3. ársfjórðungs 2010 samanborið við um 441 milljarða króna neikvæða eign á sama ársfjórðungi 2009. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1.676 milljörðum króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem nam 108,8% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 1.419 milljörðum króna á 3. ársfjórðungi 2009 eða sem svarar 94,5% af landsframleiðslu.
Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira