Enn er lítið selt af atvinnuhúsnæði 24. nóvember 2010 11:16
Í október síðastliðnum var 101 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu öllu. Þar af var 45 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og 56 samningum á landsbyggðinni. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að heildarfasteignamat seldra eigna á landinu öllu í ágústmánuði var 5,2 milljarðar kr. Fleiri samningum var þinglýst í október síðastliðnum en undanfarna 8 mánuði. Það sem af er þessu ári hefur 87 kaupsamningum um atvinnuhúsnæði verið þinglýst að meðaltali í mánuði hverjum en miklar sveiflur hafa verið í þessum tölum á milli mánaða. Markaðurinn með atvinnuhúsnæði hefur varla verið svipur hjá sjón frá bankahruni og hefur veltan dregist gríðarlega saman. Það sem af er þessu ári hefur 870 samningum og afsölum verið þinglýst á landinu öllu en á sama tímabili árið 2006, þegar viðskiptin voru sem mest á þessum markaði, hafði 2.667 samningum verið þinglýst. Reyndar er enn ekki að sjá að nokkur viðsnúningur hafi orðið á markaðinum með atvinnuhúsnæði. Þannig var færri samningum þinglýst í október í ár heldur en í sama mánuði í fyrra en fækkunin nemur 9% milli ára. Eins og fyrr segir hafði 870 samningum verið þinglýst þegar 10 mánuðir voru liðnir af þessu ári en í fyrra hafði 1.006 samningum verið þinglýst á sama tíma og hefur veltan því dregist saman um 13,5% á milli ára. Þetta kemur þó varla á óvart í ljósi þess hversu erfitt allt starfsumhverfi er fyrirtækjum um þessar mundir nú þegar tvö ár eru liðin frá bankahruninu, en fjárhagsleg endurskipulagning atvinnulífsins hefur gengið hægar fyrir sig en nokkurn óraði fyrir í upphafi.
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira