Endurskoðun úr takti við við vöxt bankanna 12. apríl 2010 14:15
Leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins (FME) á innri endurskoðuni fjármálafyrirtækja komu allt of seint fram, þótt þær hefðu verið til bóta, að mati Rannsóknarnefndar Alþingis. Tilmælin voru gefin út 24. September 2008, tæpum mánuði fyrir hrun bankanna og níu dögum eftir fall Lehman Brothers bankans í Bandaríkjunum. Þá kemur fram gagnrýni á FME í því að ekki hafi verið fylgt tilmælum svonefndra BASEL reglna um að halda reglubundið fundi með innri endurskoðendum fjármálafyrirtækja. „Þessi regla kemur ekki að ástæðulausu inn í Baselregluverkið því að þetta kemur náttúrulega upp úr áföllum sem evrópski bankaheimurinn hefur þó lent í áður en allt hrundi," er í skýrslu rannsóknarnefndarinnar haft eftir Sigurjóni Geirssynii, innri endurskoðanda Landsbanka Íslands. „Innri endurskoðun er eitt helsta innra stjórntækið sem stjórn fjármálafyrirtækis hefur yfir að ráða til að fá óháð mat á því hvort innra eftirlit sé virkt og hvort lögum og reglum, sem og stefnu fyrirtækisins, sé fylgt í daglegum störfum þess," segir í áliti rannsóknarnefndarinnar. „Að mati rannsóknarnefndar Alþingis var það mikil framför að Fjármálaeftirlitið skyldi hinn 24. september 2008 gefa út leiðbeinandi tilmæli um störf endurskoðunardeilda fjármálafyrirtækja nr. 3/2008. Á hinn bóginn var það gert allt of seint miðað við þá knýjandi þörf sem var á markvissara og öflugra innra eftirliti í fjármálafyrirtækjunum í ljósi þess að mörg þeirra höfðu stækkað um 30 til 50 prósent ár hvert, nokkur ár í röð." Þá kemur fram í skýrslu nefndarinnar um innri og ytri endurskoðun að endurskoðunardeildir bankanna hafi vart haft undan að fylgja á eftir örum vexti bankanna. „Vegna þess hvað bankarnir uxu hratt þá var innri endurskoðun alltaf á eftir," er haft upp úr skýrslu Sigurjóns Geirssonar, innri endurskoðanda Landsbanka Íslands, fyrir rannsóknarnefnd Alþingis. Niðurstaða rannsóknarnefndarinnar eftir skoðun á göngnum og yfirferð á skýrslum sem innri endurskoðendur gáfu fyrir nefndinni er að hægt hafi gengið að ná fram umbótum á því sem innri endurskoðendur bentu á í skýrslum og greinargerðum sínum. Fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar að meginverkefni endurskoðunardeilda á tímabilinu 2005 til falls fjármálafyrirtækjanna á árinu 2008 hafi verið að auka gæði og bæta rekstur og meta virkni eftirlits- og upplýsingakerfa og útlánaeftirlits. „Hvað varðar útlánaeftirlit og þá sérstaklega mat á virði útlána er ljóst að innri endurskoðunardeildir komu mjög takmarkað að því verki. Í viðtölum við innri endurskoðendur stærstu fjármálafyrirtækjanna kom einnig fram að þeir töldu það ekki hlutverk innri endurskoðunar að annast slíkt heildarmat." Vitnað er til þess að í skýrslu Ágústs Rafnkelssonar, innri endurskoðanda Glitnis, hafi komið fram að miklu hefði skipt að leiðbeinandi tilmæli Fjármálaeftirlitsins hefðu komið fyrr því það væri „alveg ljóst að á þessum uppgangsárum þá fékk hvað sem varðaði innra eftirlit ákaflega lítinn fókus, það var ekki hátt skrifað í kerfinu og alveg sama hvort menn horfa til regluvörslunnar, áhættustýringarinnar eða innri endurskoðunar þá voru þessar deildir, að minnsta kosti í Glitni, frekar veikar, lengi framan af"
Rannsóknarskýrsla Alþingis Mest lesið Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Jólabjórinn verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Sjá meira