Aflétting gjaldeyrishafta í kortunum á næstu vikum 24. september 2010 11:05
Fyrstu skref í afléttingu gjaldeyrishaftanna eru í kortunum og verða líklega stigin á næstu vikum eða mánuðum ef marka má orð Seðlabankastjóra á vaxtaákvörðunarfundi bankans sem fram fór síðastliðinn miðvikudag. Fjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að í ljósi nýlegs dóms Hæstaréttar um gengistryggð lán og yfirvofandi þriðju endurskoðunar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) eru nú, að mati Seðlabankans, flest skilyrði til staðar til að stíga næsta skref í afnámi hafta, sem veldur því að meiri áhersla er lögð á það nú að hefja afléttingu haftanna en áður. Ekki fór mikið fyrir nákvæmum útlistunum eða tímasetningum varðandi þetta mikilvæga atriði í fyrradag, en tímasett áætlun mun vera í smíðum innan Seðlabankans og verður birt innan tíðar samkvæmt því sem kom fram á fundinum. Í ljósi þessara yfirlýsinga og skorts á nánari upplýsingum um útfærslu er ekki úr vegi að dusta rykið af áætlun Seðlabankans um afnám gjaldeyrishafta sem birt var fyrir rúmlega ári síðan, en ekki er ólíklegt að sú áætlun sem er nú í smíðum muni bera einhvern keim af henni. Þar er lögð áhersla á að flokka eignaflokka eftir líftíma þeirra og aflétta fyrst höftum á þá flokka sem hafa lengsta líftímann. Síðar verður svo hafist handa við að létta höftum af flokkum sem hafa miðlungslangan og skamman tíma. Ekki er þó útilokað að tappað verði af einhverju magni úr styttri flokkunum í gegnum skiptiútboð eða uppboð áður en höftunum verður aflétt en nánari útlistun á þessu verður eflaust að finna í nýrri áætlun sem væntanleg er. Ekki er allskostar ólíklegt að fyrstu drög af því hvernig sú áætlun lítur út verði að finna í skýrslu AGS sem mun koma út samhliða því að þriðja endurskoðun á efnahagsáætluninni fer fram í framkvæmdastjórn sjóðsins um miðja næstu viku. Gríðarlega mikilvægt er að sú áætlun um afnám gjaldeyrishafta sem nú er í burðarliðnum muni standast betur en sú áætlun sem gefin var út á síðasta ári. Afar slæmt væri fyrir trúverðugleika Seðlabankans ef að út kæmi á hverju ári endurnýjuð áætlun um afnám gjaldeyrishafta án þess að nokkur framkvæmd fylgdi í þeim efnum, að því er segir í Morgunkorninu.
Mest lesið Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Viðskipti innlent Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Sjá meira