Steinunn: Glitnismálið rekið hér heima Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. desember 2010 17:27 Steinunn Guðbjartsdóttir segir niðurstöðuna vera vonbrigði. „
Dómarinn komst að þessari niðurstöðu. Hann taldi að málið ætti heima á Íslandi en hann setti hins vegar tvö skilyrði sem stefndu verða að uppfylla," segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. Hæstiréttur í New York vísaði í dag frá stefnu slitastjórnarinnar gegn sjömenningum sem stefnt hafði verið vegna ásakana um að hafa með sviksamlegum og ólöglegum hætti haft fé af bankanum. Skilyrðin eru af tvennum toga segir Steinunn. „Í fyrsta lagi að þeir myndu ekki mótmæla lögsögu íslenskra dómstóla. Því einhverjir af þessum aðilum eru jú búsettir utan Íslands," segir Steinunn. Í öðru lagi að sjömenningarnir myndu ekki mótmæla fullnustu íslensks dóms yfir eignum erlendis. „Það eru skilyrðin fyrir því að málið fari ekki áfram hér að þeir gangist undir þetta," segir Steinunn. Steinunn segir niðurstöðuna í New York vissulega vera vonbrigði, en hana verði að virða. „Þessu máli er náttúrlega langt því frá að vera lokið," segir Steinunn. Hún býst við því að málið verði rekið hér heima og að hægt sé að stíga næstu skref áður en langt er um liðið. Hún segir að sú vinna sem þegar hafi farið fram muni nýtast. Máli sínu til stuðnings segir hún að lögmennirnir sem hafi unnið fyrir slitastjórnina ytra hafi verið í samstarfi við íslenska lögmenn.
Tengdar fréttir Skaðabótamál Glitnis: Frávísunarkrafa tekin fyrir í dag Málflutningur vegna frávísunarkröfu hinna stefndu í skaðabótamáli Glitnis í New York hefst klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Sjömenningarnir og PriceWaterHouseCoopers, endurskoðunarfyrirtæki Glitnis, krefjast þess að málinu verði vísað frá dómi í New York. 14. desember 2010 15:52 Máli Glitnis gegn sjömenningum í New York vísað frá Dómari í New York hefur vísað frá máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og sex viðskiptafélögum hans. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að vísa bæri málinu frá á þeim forsendum að allir málsaðilar séu íslenskir og því beri að flytja málið á Íslandi. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar staðfestir þetta í samtali við Vísi. 14. desember 2010 17:04 Jón Ásgeir: Förum líklega í skaðabótamál „Ég er ánægður með niðurstöðuna. Þetta er búinn að vera erfiður tími frá því 11. maí. Slitastjórnin fór yfir strikið gagnvart okkur," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, í samtali við Pressuna. Dómari í New York vísaði í dag máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri og sex viðskiptafélögum hans. Hann segir að slitastjórnin hljóti að sæta ábyrgð og hætta. 14. desember 2010 17:56 Mest lesið „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Sjá meira
Skaðabótamál Glitnis: Frávísunarkrafa tekin fyrir í dag Málflutningur vegna frávísunarkröfu hinna stefndu í skaðabótamáli Glitnis í New York hefst klukkan fjögur í dag að íslenskum tíma. Sjömenningarnir og PriceWaterHouseCoopers, endurskoðunarfyrirtæki Glitnis, krefjast þess að málinu verði vísað frá dómi í New York. 14. desember 2010 15:52
Máli Glitnis gegn sjömenningum í New York vísað frá Dómari í New York hefur vísað frá máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni og sex viðskiptafélögum hans. Dómari komst að þeirri niðurstöðu að vísa bæri málinu frá á þeim forsendum að allir málsaðilar séu íslenskir og því beri að flytja málið á Íslandi. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar staðfestir þetta í samtali við Vísi. 14. desember 2010 17:04
Jón Ásgeir: Förum líklega í skaðabótamál „Ég er ánægður með niðurstöðuna. Þetta er búinn að vera erfiður tími frá því 11. maí. Slitastjórnin fór yfir strikið gagnvart okkur," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, í samtali við Pressuna. Dómari í New York vísaði í dag máli slitastjórnar Glitnis gegn Jóni Ásgeiri og sex viðskiptafélögum hans. Hann segir að slitastjórnin hljóti að sæta ábyrgð og hætta. 14. desember 2010 17:56