Á heimsmælikvarða 17. október 2010 19:09 „Við ákváðum að setja mikinn kraft í að skapa stofunni ný og spennandi verkefni,“ segir Kristján Örn hjá KRADS, sem hefur vakið alþjóðlega athygli á árinu
Íslensk-danska arkitektastofan KRADS er á meðal upprennandi arkitektastofa sem fjallað er um í nýrri bók sem hefur verið gefin út í tengslum við Tvíæringinn í Feneyjum. „Það er að sjálfsögðu mjög skemmtilegt að vera með í þessum góða hópi og um leið mikil viðurkenning á okkar starfi," segir Kristján Örn Kjartansson, einn eigenda KRADS, sem um er fjallað í nýrri bók þar sem kynntar eru til sögunnar 45 ungar og upprennandi arkitektastofur víðs vegar í heiminum. Bókin kallast Worldwide Architecture - The Next Generation og er gefin út af ítalska forlaginu Wolters Kluwer í tengslum við Tvíæringinn í Feneyjum. Þar lét KRADS að sér kveða og kynnti verkefni stofunnar í veglegri veislu, sem haldin var í tilefni af útgáfu bókarinnar í borginni við síkin. Kristján getur þess að KRADS sé eina stofan í bókinni sem er fulltrúi tveggja landa, Íslands og Danmerkur. „Við erum nefnilega með stofur í báðum löndum," útskýrir hann. Óhætt er að segja að KRADS hafi vakið mikla athygli á árinu, þar sem stofan var að auki verðlaunuð á fjórða alþjóðlega þríæringnum í Ósló. „Við lentum í öðru sæti í hugmyndasamkeppninni Man Made Reformulate fyrir tillögu að því hvernig mætti lífga upp á bílastæðahúsin í Ósló. Okkur þótti það ekki síður ánægjulegt," segir Kristján og getur þess að á dögunum hafi stofunni borist í hendur veglegur bæklingur sem inniheldur verðlaunatillögurnar, þar á meðal frá KRADS. Kristján segir þessa viðurkenningu og fleiri afrakstur af mikilli hugmyndavinnu sem stofan hafi farið í í kjölfarið á samdrætti í byggingaiðnaði. „Við ákváðum að setja mikinn kraft í að skapa stofunni ný og spennandi verkefni. Okkur hefur reyndar reitt ágætlega af undanfarið þar sem við erum fremur ung stofa, með lítinn mannskap og útibú að auki í Danmörku þar sem markaðurinn hefur ekki orðið eins illa úti í kreppunni. Þar eru verkefnin aðeins fleiri en þess utan held ég að almennt sé farið að birta aðeins til í þessum bransa," segir hann og getur þess að stofan hafi mörg járn í eldinum. „Við erum nýbyrjaðir að vinna með hönnuðum í New York að spennandi verkefni í Istanbúl, sem felur meðal annars í sér innanhúshönnun fyrir kvikmyndasal, hljóðstúdíó og útsýnisbar. Þá vorum við með vinnustofu fyrir nemendur arkitektadeildar LHÍ í vor, í samvinnu við skólann og LEGO Concept Lab. Við verðum með vinnustofuna í Den Skandinaviske Designhøjskole í Randers í Danmörku í nóvember og ætlum að kynna hana í fleiri skólum í Evrópu og Bandaríkjunum, svo fátt eitt sé nefnt." - rve
Mest lesið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Fleiri fréttir Slakur með 62 milljón króna hálsmen Björk glæsileg í indverskri hönnun Segir nei takk við jakkafatapésana Best klæddu pör sögunnar Björn skellti sér strax í sokkana Afhjúpa þemað fyrir tískuveislu ársins Dorrit ánægð með demantsklædda Kylie Furðulegar þýðingar netverslunar: „Smjaðandi silúett“ og „skjaldbökunnarbrún rammi“ Gullin regla að sýna ekki allt hold í einu Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Sjá meira