Eigið fé MP Banka er undir lágmarki FME 29. nóvember 2010 07:35
MP banki hefur ekki birt uppgjör fyrir fyrri helming ársins. Eigið fé bankans er undir þeim mörkum sem Fjármálaeftirlitið (FME) hefur sett honum, en bankinn hefur sent uppgjör sitt þangað til yfirferðar. Þetta kom fram í fréttum RÚV í gærkvöldi. Í yfirlýsingu frá bankanum kemur fram að stjórnendur og stjórn bankans séu sammála FME um að eigið fé bankans þurfi að styrkja. Vinnan við öflun eigin fjár gangi vel og niðurstöður eigi að liggja fyrir í lok desember. "Lausafjárstaða bankans er sú sterkasta meðal íslenskra innlánsstofnana og samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki uppfyllir bankinn skilyrði um lágmarks eigið fé og hefur alltaf gert," segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka, í yfirlýsingunni. - sv Yfirlýsingin í heild hljóðar svo: "MP banki er eini viðskiptabankinn sem fór ekki í þrot í bankahruninu og hefur ekki fengið neinn opinberan stuðning. MP banki er ekki með gengistryggð bílalán eða húsnæðislán í eignasafni sínu. Af þessum ástæðum er MP banki fyrsti og eini íslenski bankinn sem hefur farið í gegnum innra mat á eiginfjárþörf í samstarfi við FME. Þetta er hluti af innleiðingu Basel II reglna eða svokallaðs ICAAP og SREP ferlis.* Í þessu ferli eru gerðar aðrar og mun strangari kröfur um mat á eiginfjárþörf en áður giltu. Stjórn og stjórnendur bankans eru sammála FME um að styrkja þurfi eiginfjárgrunn bankans og er það í samræmi við fyrri yfirlýsingar stjórnar. Vinna við öflun eiginfjár og aðrar breytingar ganga vel og munu niðurstöður liggja fyrir í lok desember. „ Lausafjárstaða bankans er sú sterkasta meðal íslenskra innlánsstofnana og samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki uppfyllir bankinn skilyrði um lágmarks eigið fé og hefur alltaf gert“ segir Ragnar Þórir Guðgeirsson, stjórnarformaður MP banka. Þegar óvissu um virði eigna annarra íslenskra viðskiptabanka hefur verið eytt, m.a. vegna gengislánafrumvarps, mun einnig þurfa að endurmeta eignir þeirra og eiginfjárstöðu samkvæmt þessum Basel II reglum. MP banki telur samkeppnisstöðu sína á íslenskum markaði mjög sterka og aukið eigið fé mun gefa færi á frekari vexti bankans. *Internal Capital Adequacy Assessment Process (ICAAP). Supervisory Review and Evaluation Process (SREP)."
Mest lesið Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Viðskipti innlent Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Seðlabankinn ósammála Daða Má Viðskipti innlent Lovísa til Orkuveitunnar Viðskipti innlent Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Viðskipti innlent „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Sjá meira