LV kaupir í Icelandair fyrir milljarð 15. júní 2010 16:42
Í dag gerði Lífeyrissjóður verzlunarmanna bindandi samkomulag við Icelandair Group hf. um að sjóðurinn muni fjárfesta í fyrirtækinu fyrir 1 milljarð króna og eignast með því 12% hlut í félaginu. Lífeyrissjóður verzlunarmanna mun skrá sig fyrir 400 milljónum nýrra hluta á genginu 2,5 - alls fyrir 1 milljarð króna, segir í tilkynningu. Samningurinn er gerður í kjölfar samnings Framtakssjóðs Íslands um kaup á nýju hlutafé í Icelandair Group fyrir þrjá milljarða króna sem tilkynnt var um í gær. Kaup sjóðsins fara fram á sama gengi. Samningurinn við Lífeyrissjóð verzlunarmanna er gerður með hefðbundnum fyrirvara um niðurstöðu áreiðanleikakönnunar. Með samningnum hefur Icelandair Group aflað samtals 4 milljarða af reiðufé með sölu á nýju hlutafé á tveimur dögum. Auk þess hafa stærstu lánveitendur félagsins skuldbundið sig til að breyta skuldum að fjárhæð 3,6 milljarðar króna í hlutafé miðað við gengið 5, þannig að þeir munu skrá sig fyrir 720 milljón nýjum hlutum. Við fjárhagslega endurskipulagningu fyrirtækisins er gert ráð fyrir að skuldir þess verði lækkaðar um ríflega 10 milljarða króna m.a. með yfirfærslu og sölu á tilteknum eignum sem eru ekki hluti af kjarnastarfsemi félagsins, eins og fram kom í tilkynningu til Kauphallarinnar þann 25. mars sl. Gert er ráð fyrir að fjárfestum og almenningi verði gefinn kostur á að leggja félaginu til nýtt hlutafé í hlutafjárútboðum síðar á árinu. „Ég er mjög ánægður með fjárfestingu Lífeyrissjóðs verzlunarmanna í Icelandair Group," segir Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group í tilkynningunni. "Á tveimur dögum hefur okkur tekist að breikka hluthafahóp félagsins verulega enda eiga langflestir launamenn landsinshagsmuna að gæta með sparifé sitt í Framtakssjóðnum og lífeyrissjóðnum. Fjárfesting lífeyrissjóðsins mun auka enn á styrk félagsins og getu þess til að styrkja frekar stöðu ferðaþjónustunnar sem einnar mikilvægustu atvinnugreinar landsins."
Mest lesið „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Viðskipti innlent Kennari kveður: „Allt gekk auðvitað út á rúntinn“ Atvinnulíf Skilur að fólk hafi áhyggjur af falli Bitcoin en er sjálfur rólegur Viðskipti erlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Viðskipti innlent Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna Viðskipti innlent Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Viðskipti innlent Platar sjálfan sig á morgnana til að líða geðveikt fersk Atvinnulíf Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Viðskipti innlent Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta Samstarf Fleiri fréttir „Ég held bara að við sem þjóð séum ekki tilbúin í þetta“ Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Félag Skorra Rafns að kaupa Valhöll Bein útsending: Verðlaunaafhending Stjórnverðlaunanna „Fullyrðingar ákæruvaldsins eru á sandi byggðar“ Móðurfélag Krónunnar og N1 hagnaðist um 6,2 milljarða Icelandair tapaði 1,2 milljörðum árið 2025 Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Icelandair hyggst hefja flug til Póllands Þingmaður vænir Guðmund í Brim um að arðræna Grænlendinga Lovísa til Orkuveitunnar „Skýrar og síendurteknar hótanir í garð verkalýðshreyfingarinnar“ Vandamálið að „verðbólgan hættir ekkert“ Allt að tíu milljarðar renna í Brunn III Yfir áttatíu starfsmönnum við fiskeldi sagt upp sem þó fá áfram boð um vinnu Anna Lísa til Aton Seðlabankinn ósammála Daða Má Bein útsending: Kynna vaxtaákvörðun og Peningamál Krambúðir, Kjörbúðir og 10–11 verða SPAR Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Vilhjálmur Theodór til Varðar Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Sjá meira