Liverpool án Gerrard í seinni leiknum við Sparta Prag Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. febrúar 2011 17:45 Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, með boltapokann á æfingu. Mynd/AFP
Steven Gerrard, fyrirliði Liverpool, mun ekki spila með Liverpool á Anfield á morgun þegar tékkneska liðið Sparta Prag kemur í heimsókn í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. Sparta Prag og Liverpool gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Tékklandi. Gerrard er búinn að missa af tveimur síðustu leikjum Liverpool vegna nárameiðsla en Liverpool-menn vonast til að hann geti verið með á móti West Ham United í ensku úrvalsdeildinni á sunnudaginn. Kenny Dalglish, stjóri Liverpool, er ekki endanlega búinn að gefa það út að Gerrard spili ekki leikinn en það er langlíklegast að hann taki enga óþarfa áhættu með fyrirliða sinn. „Eins mikið og ég myndi elska það að Steven yrði með þá tel ég að við þurfum að hugsa lengra en bara um þennan eina leik. Ef hann verður hundrað prósent klár á morgun þá kemur hann samt til greina eins og allir heilir leikmenn," sagði Kenny Dalglish. Daniel Agger og Jay Spearing gætu spilað leikinn en Fabio Aurelio og Luis Suárez verða ekki með, Aurelio er meiddur og Suárez er ólöglegur þar sem að hann spilaði með Ajax í Evrópudeildinni fyrr í vetur.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Komst ekki úr sokkunum fyrir blöðrum Sport „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Enski boltinn „Þetta er karfa tímabilsins“ Körfubolti Luka Gasic frá í nokkrar vikur Körfubolti Snýr Trent aftur til Liverpool? Enski boltinn Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ Þrýstingur á þjálfarastólinn fer að aukast Ýmislegt fyrir stuðningsmenn Tottenham til að fagna Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Loksins sigur hjá Tottenham Akstur yfir á rauðu ljósi eitt af mörgum umferðarlagabrotum „Hann kvartar yfir öllu“ Segir Carrick þurfa að ná fimmta sætinu Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Nott. Forest - Arsenal 0-1 | Varamaðurinn reyndist hetja meistaranna Flugeldasýning Brighton og Bournemouth vann tíu gesti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Löng bið eftir sigri lengist enn Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Manzambi reyndist hetja Aston Villa Fulham vann loksins og sendi Tottenham á botninn Sjáðu tvennuna hjá sjóðheitum Andra Lucasi Haaland nálægt þrennu en fór meiddur af velli Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Neto sá til þess að Everton tapaði í fyrsta sinn Segir að gagnrýni Martinez sé í baksýnisspeglinum Aftur vandræðagangur hjá Manchester United fyrir útileik gegn Leeds Fyrirliði Chelsea undir hnífinn Kjartan samþykkti erfiða áskorun: „Á dauða mínum átti ég von“ Slátrarinn baðst afsökunar en fær sekt Getafe búið að setja sig í samband við Sancho Kennir svindli Manchester City um að hafa verið rekinn Mamdani skaut á Man City Sjá meira