Enski boltinn

Flug­eldasýning Brig­hton og Bour­nemouth vann tíu gesti

Sindri Sverrisson skrifar
Charalampos Kostoulas fagnar eftir að hafa skorað fjórða mark Brighton í dag.
Charalampos Kostoulas fagnar eftir að hafa skorað fjórða mark Brighton í dag. Getty/Robe Newell

Brighton-menn halda áfram að fara á kostum í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og unnu í dag 5-0 stórsigur á Crystal Palace þar sem mark frá miðju stóð upp úr. Bournemouth vann svo 2-0 gegn tíu leikmönnum Sunderland.

Brighton er sem stendur í 2. sæti deildarinnar, fimm stigum á eftir toppliði Manchester City, en gæti misst Arsenal upp fyrir sig síðar í dag.

Liðið komst í 3-0 á fyrstu tíu mínútunum gegn Palace í dag en annað mark leiksins var ótrúlegt skot Diego Gómez frá miðju sem sjá má hér að neðan.

Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Jaydee Canvot og Yasin Ayari skoraði svo þriðja markið. 

Staðan var 3-0 í hálfleik eða þar til að gríski táningurinn Charalampos Kostoulas skoraði snemma í seinni hálfleik og Jack Hinshelwood skoraði svo lokamarkið á 84. mínútu.

Marcus Tavernier skoraði fyrra mark Bournemouth gegn Sunderland í dag og verkefni heimamanna varð enn þægilegra þegar Kevin Danso braut á Evanilson sem aftasti maður og fékk beint rautt spjald, á 17. mínútu.

Evanilson skoraði svo seinna mark Bournemouth snemma í seinni hálfleik.

Þetta var fyrsti sigur Bournemouth á leiktíðinni og er liðið nú með sex stig í 15. sæti en Sunderland er í fallsæti með fjögur stig.


Tengdar fréttir

Löng bið eftir sigri lengist enn

Leeds og Manchester United gerðu 1-1 jafntefli í sjöundu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×