Sebastian í marki Selfyssinga í jafntefli á móti Haukum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 21. febrúar 2011 21:06 Sebastian Alexandersson.
Sebastian Alexandersson, 41 árs þjálfari Selfyssinga, tók fram skóna og fór í markið þegar Selfoss gerði 31-31 jafntefli á móti Haukum á Selfossi í N1 deild karla í kvöld. Selfyssingurinn Guðmundur Árni Ólafsson tryggði Haukum jafntefli með því að skora jöfnunarmarkið úr vítakasti eftir að leiktíminn var liðinn. Selfoss var með frumkvæðið í seinni hálfleik og var um tíma með tveggja marka forystu en Haukar náðu að tryggja sér eitt stig í blálokin. Sebastian Alexandersson skipti sjálfum sér í markið í fyrri hálfleik þegar Selfyssingar voru komnir sex mörkum undir, 11-5. Selfoss náði að minnka muninn niður í tvö mörk fyrir hálfleik en Haukar voru þá 17-15 yfir. Sebastian varði vel í seinni hálfleik en tókst ekki að verja vítið hjá Guðmundi Árna í lokin og Selfoss þarf því að bíða enn lengur eftir fyrsta sigri sínum. Selfoss hefur ekki unnið leik síðan í októbermánuði. Selfoss-Haukar 31-31 (15-17)Mörk Selfoss: Guðjón Finnur Drengsson 10, Ragnar Jóhannsson 7, Helgi Héðinsson 4, Einar Héðinsson 3, Gunnar Ingi Jónsson 3, Milan Ivancev 2, Andrius Zigelis 1, Atli Kristinsson 1.Mörk Hauka: Guðmundur Árni Ólafsson 9, Tjörvi Þorgeirsson 8, Freyr Brynjarsson 4, Björgvin Hólmgeirsson 4, Einar Örn Jónsson 3, Jónatan Ingi Jónsson 2, Heimir Óli Heimisson 1.
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira