Spjaldaglaðasti dómari HM-sögunnar fyrirlesari hjá íslenskum dómurum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. mars 2011 23:30 Valentin Ivanov gefur hér Khalid Boulahrouz rautt spjald í leiknum. Mynd/Nordic Photos/Getty
Um helgina fer fram árleg landsdómararáðstefna sem er hluti af undirbúningi dómara fyrir komandi keppnistímabil í fótboltanum. Dómarar hafa verið við æfingar frá því 1. nóvember undir stjórn Egils Eiðssonar en auk þess hafa kennarar og nemendur úr Háskólanum í Reykjavík komið að undirbúningnum með einum eða öðrum hætti. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ. Að þessu sinni fer landsdómararáðstefnan fram í Reykjavík og Úthlíð í Biskupstungum. Sérstakur gestafyrirlesari á ráðstefnunni að þessu sinni er Rússinn Valentin Ivanov, fyrrum dómari og núverandi dómaraleiðbeinandi hjá UEFA. Ivanov mun meðal annars sjá um verklegar æfingar fyrir aðstoðardómara, fara yfir dómgæslu á HM frá í fyrra og mun halda fyrirlestur um "Leikstjórn" (Match Management). Dómararnir munu einnig gangast undir skriflegt próf sem og að dómararnir sjálfir munu halda erindi á ráðstefnunni. Valentin Ivanov er sá dómari sem hefur gefið flest gul og rauð spjöld í einum leik í úrslitakeppni HM. Hann gaf sextán gul spjöld og fjögur rauð spjöld í 1-0 sigri Portúgal á Hollandi í 16 liða úrslitum á HM í Þýskalandi 2006. Portúgalarnir Costinha og Deco sem og Hollendingarnir Khalid Boulahrouz og Giovanni Van Bronckhorst fengu allir tvö gul spjöld í leiknum og þar með rautt spjald.
Íslenski boltinn Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Barcola braut ísinn með látum í Austurríki Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Tvenna Haalands dugði skammt gegn PSG Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Fleiri fréttir Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Sjá meira