Halldór: Eigum talsvert inni Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. apríl 2011 16:00 Halldór Jóhann í leik með Fram. „
Við höfum sagt það áður að við ætlum okkur stóra hluti á þessu tímabili og við viljum fara lengra. Það er spurning hvort það takist í kvöld," segir Halldór Jóhann Sigfússon, fyrirliði Fram. Fram mætir í kvöld FH í oddaleik liðanna í undanúrslitum úrslitakeppni N1-deildar karla. FH vann nokkuð sannfærandi sigur á heimavelli í fyrsta leik liðanna en Fram svaraði fyrir sig með sigri í spennandi leik um helgina. „Ég á von á hverju sem er í kvöld," sagði Halldór Jóhann í samtali við Vísi. „Ég vonast fyrst og fremst eftir jöfnum og spennandi leik og vona að fólk muni fjölmenna á völlinn. Bæði lið ætla sér áfram sem er eðlilegt." Hann segir að sínir menn hafi ekki alltaf náð að sýna sitt rétta andlit að undanförnu en að það skipti ekki máli þegar út í svona leik er komið. „Við höfum verið nokkuð rokkandi. Við höfum unnið leiki mjög sannfærandi en svo dottið niður inn á milli eins og við gerðum í fyrri leiknum gegn FH í Kaplakrika. En ég tel að það skipti ekki máli í svona leik þar sem allt er undir. Það vilja allir vera í úrslitakeppninni og við erum að berjast fyrir lífi okkar eins og hin liðin." „Við teljum að við eigum enn talsvert inni. Við náðum ekki að sýna okkar rétta andlit, hvorki í fyrri leiknum né í fyrri hálfleik í leiknum um helgina," sagði hann. „Við töluðum um það í hálfleik og ég held að við getum gert enn betur en við höfum sýnt í þessarri rimmu." Halldór Jóhann að varnarleikur og markvarsla muni mestu máli skipta í kvöld, eins og svo oft áður. „Bæði lið geta spilað góða vörn og fengið þá góða markvörslu í leiðinni. Ég hef ekki miklar áhyggjur af sóknarleiknum okkar." „Ég vonast eftir spennandi leik og að þetta ráðist á síðustu sekúndunum. Það er alltaf skemmtilegast fyrir leikmenn og áhorfendur."
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira