Atli: Finnst best að vinna mikið á leikdegi Henry Birgir Gunnarsson skrifar 14. apríl 2011 14:15 Atli Hilmarsson.
Atli Hilmarsson, þjálfari Akureyrar, var pollrólegur og ekki í neinu stressi þegar Vísir heyrði í honum í dag. Deildarmeistarar Akureyrar taka á móti HK í kvöld í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum N1-deildar karla. "Ég vil helst vinna sem mest á leikdegi. Þá þarf ég ekki að velta mér upp úr leiknum allan daginn. Ég er búinn að undirbúa liðið eins vel og ég get þannig að það hefur lítið upp á sig að hugsa um leikinn í allan dag. Ég vil því vinna mikið, fara svo heim og á völlinn," sagði Atli um undirbúninginn á leikdegi. Akureyri hefur gengið vel gegn HK í vetur og unnið allar fjórar rimmur liðanna. Atli á þó ekki von á auðveldu verkefni. "Við unnum fyrsta leikinn létt en hinir þrír leikirnir voru hörkuleikir. HK er með gott lið sem hefur unnið öll liðin í deildinni nema okkur. Það segir sitt um þeirra styrkleika. Þess vegna búumst við ekki neinu öðru en erfiðum leik," sagði Atli. Allir leikmenn Akureyrar eru klárir í slaginn nema örvhenta skyttan, Geir Guðmundsson. Hann er á leið í aðgerð og spilar því ekki meira í vetur. "Við höfum verið án hans eftir áramót. Auðvitað söknum við hans en hann kemur sterkur til baka á næstu leiktíð," sagði Atli sem óskar eftir stuðningi í kvöld. "Heimavöllurinn hefur reynst okkur dýrmætur og ég vonast eftir fullu húsi og stemningu í kvöld eins og í allan vetur."
Olís-deild karla Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Íslenski boltinn Tár féllu í Bakgarðshlaupinu Sport Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Sport Finnur til með Arnari Handbolti „Falleg stund að fá að keppa á móti litla bróður“ Fótbolti Kærkominn sigur KA/Þór Handbolti Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Fleiri fréttir Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Sjá meira