Jákup hagnaðist um tæplega tvo milljarða í síðustu viku 28. apríl 2011 12:15 Jákup byggir veldi sitt á Rúmfatalagernum.
Færeyingurinn Jákup Jacobsen hagnaðist um tæpa tvo milljarða á eignasafni sínu í Bandaríkjunum í liðinni viku og á þar að auki eignasafn í hlutabréfum fyrir um átta milljarða króna. Forbes-bloggaranum Brendan Coffey þykir reyndar svo mikið til Jákups koma að hann bloggar um viðskiptaafrek hans. Jákup opnaði Rúmfatalagerinn hér á landi árið 1987 og fór svo í útrás með starfsemi sína til Búlgaríu í Austur-Evrópu. Síðar keypti hann Ilva sem fór í þrot í júní 2008. Samkvæmt lánabók Kaupþings frá 25. september 2008 sem var birt á vefnum Wikileaks síðsumars sama ár námu skuldir Lagersins, sem er fjárfestingafélag Jákpus, og tengdra félaga við Kaupþing, 318 milljónum evra, eða 58 milljörðum króna á gengi dagsins í dag. Alls skuldaði hann rétt tæpa áttatíu milljarða íslenskra króna við fall bankanna síðla árs 2008 samkvæmt rannsóknarskýrslu Alþingis. Fasteignafélag Jákups byggði meðal annars turninn í Kópavogi. Fréttastofa stöðvar 2 fjallaði reyndar um það í nóvember 2009 að Lagerinn hefði átt í samningaviðræðum við Nýja Kaupþing banka um endurskipulagningu á rekstri með það fyrir augum að létta á íþyngjandi skuldabyrði félagsins. Í Forbes-blogginu er einnig fjallað um hafnaboltastjörnuna Alex Rodriguez sem spilar með Yankees. Hægt er að lesa færslu Coffey´s hér. Jákup er búsettur í Kína í dag.
Mest lesið Áhrifavaldur losar sig við steinefni Viðskipti innlent Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Fleiri fréttir Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Ætla að opna verslunarkjarna á Korputúni Eru greiðsludreifingar virkilega jafn hentugar og allir segja? Höfðar til ábyrgðar olíufélaga og segir verðið nú þegar óeðlilegt Atvinnulausum verkamönnum fjölgar um fjörutíu prósent Tækifæri fylgi flugi frá Kína en einnig hættur Upptaka evru myndi ekki einungis hafa áhrif á vexti Opna fjórðu SPAR-verslunina á morgun Rammagerðin leitar nauðasamninga Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Dóra Björt ráðin deildarstjóri Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Sjá meira