Viðskipti innlent

Ragnar Jónas­son til liðs við Logos

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Ragnar Jónasson er betur þekktur fyrir störf sín á vettvangi ritlistarinnar.
Ragnar Jónasson er betur þekktur fyrir störf sín á vettvangi ritlistarinnar. HAG

Ragnar Jónasson hefur hafið störf sem sérstakur ráðgjafi hjá lögmannsstofunni Logos. Hann mun sinna afmörkuðum verkefnum á sviði viðskiptaþróunar samhliða ritstörfum.

Fram kemur í tilkynningu frá Logos að samhliða ritstörfum hafi Ragnar víðtæka reynslu af lögfræðitengdum störfum í atvinnulífinu. Áður starfaði hann í fyrirtækjaráðgjöf Arion banka, var yfirlögfræðingur Gamma og gegndi stöðum forstöðumanns skrifstofu slitastjórnar Kaupþings og forstöðumanns lögfræðiráðgjafar Arion banka. Feril sinn hóf hann hjá Kaupþingi í fyrirtækjaráðgjöf og á lögfræðisviði. Ragnar er með embættispróf í lögfræði frá Háskóla Íslands og kennir við lagadeild Háskólans í Reykjavík.

„Traust tengsl og stöðug þróun þjónustu við viðskiptavini eru undirstaða í starfsemi LOGOS. Með nýju hlutverki Ragnars styrkjum við enn frekar þá þekkingu og reynslu sem LOGOS byggir á í samskiptum við viðskiptavini sína. Ragnar þekkir vel til bæði lögfræðilegrar ráðgjafar og þarfa jafnt einstaklinga sem fyrirtækja eftir langan feril á fjármálamarkaði. Sú reynsla mun nýtast vel í starfinu,“ er haft eftir Jóni Elvari Guðmundssyni framkvæmdastjóra.

Ragnar er einn þekktasti rithöfundur landsins og hefur notið mikillar velgengni erlendis. Undanfarin ár hefur hann að mestu helgað sig ritstörfum. Bækur hans hafa komið út í 35 löndum sem hann hefur fylgt eftir á fjölmörgum viðburðum og í fjölmiðlum víða um heim.

„Ritstörf og ferðalög þeim tengd hafa sannarlega tekið yfir tíma minn að mestu undanfarin ár og gera enn og færa mér mikla ánægju. Ég hef hins vegar alltaf reynt að halda lögfræðiþekkingunni við að því marki sem kostur er og hef til dæmis kennt sem stundakennari við lagadeild Háskólans í Reykjavík í meira en fimmtán ár. Ég kann því vel að meta að fá tækifæri til að geta sinnt afmörkuðum verkefnum hjá LOGOS á sviði lögfræðinnar samhliða ritstörfum,“ er haft eftir Ragnari.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×