BÍ/Bolungarvík ósátt við kynþáttafordóma í Ólafsvík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 9. júlí 2011 16:45 Tomi Ameobi fékk gult spjald gegn Þrótti á dögunum sem Guðjón Þórðarson var allt annað en sáttur við Mynd/Anton
Víkingur í Ólafsvík vann mikilvægan 4-1 sigur á BÍ/Bolungarvík í viðureign liðanna á Snæfellsnesi í gær. Á heimasíðu BÍ/Bolungarvíkur segir að leikmenn liðsins hafi orðið fyrir niðrandi hrópum frá heimamönnum meðan á leik stóð. Á heimasíðu Vestfirðinga www.bibol.is er fjallað um leikinn og í lok umfjöllunarinnar er skrifað: „Það má bæta við þetta að andrúmsloftið í Ólafsvík var vægast sagt öðruvísi en annars staðar því oft á tíðum var hrópað að tveim leikmönnum okkar mjög niðrandi hróp sem flokkast einfaldlega undir kynþáttafordóma. Hrópin ómuðu um Ólafsvík og fóru væntanlega ekki framhjá neinum íbúa bæjarins." Að sögn Vestfirðinga bárust köllin aðallega að Tomi Ameobi þegar hann var með boltann. Loic Mbang Ondo hafi þó ekki sloppið við köllin. Hrópið „takið á þessum helvítis negra djöfli" var nefnt sem dæmi um hróp sem heyrðust úr stúkunni. Jónas Gestur Jónasson formaður knattspyrnudeildar Víkings Ólafsvík kannaðist ekki við hróp á borð við þessi á vellinum í gær. „Nei, ég gat nú ekki heyrt það. Það kallaði einhver "takið þennan svarta" eða eitthvað svoleiðis en ég veit ekki hvort það séu kynþáttafordómar," sagði Jónas Gestur. „Þess má geta að við erum með einn strák (Matarr Jobe) sem er svartur á hörund í okkar liði sem var reyndar ekki í hópnum í gær. Það er enginn rasismi í fólkinu fyrir vestan," sagði Jónas Gestur. Þess má til gaman geta að Vestfirðingar spiluðu í varabúningum Víkinga þar sem þeir tóku rangt búningasett með sér í Ólafsvík. Víkingur lyfti sér upp í fjórða sæti 1. deildar með 15 stig með sigrinum í gær. BÍ/Bolungarvík situr í því áttunda með 13 stig.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira