Stelpurnar fóru bara á taugum í leiknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2011 06:00 Guðmunda Brynja Óladóttir í leiknum í gær. Mynd/Íris Björk Eysteinsdóttir
Íslenska 17 ára landsliðið spilar um bronsið á Evrópumótinu í Nyon í Sviss eftir 0-4 tap á móti Spáni í undanúrslitaleiknum í gær. Íslensku stelpurnar mæta Þýskalandi í leiknum um þriðja sætið á sunnudaginn en þýsku stelpurnar töpuðu á móti Frökkum í vítakeppni í undanúrslitum í gær. Íslenska liðið hafði unnið alla sex leiki sína og skorað 37 mörk á leið sinni í úrslitin en íslensku stelpurnar áttu aldrei möguleika gegn sterku spænsku liði. „Við áttum bara einfaldlega afleitan dag. Leikmenn fóru bara á taugum og þá fer allt forgörðum, bæði sendingar og móttaka. Fólk fer að fela sig og vill ekki fá boltann. Það var nú það sem gerðist,“ sagði Þorlákur Árnason, þjálfari íslenska liðsins, en íslensku stelpurnar voru langt frá því að sýna þann leik sem kom þeim í úrslitakeppnina. „Þetta var okkar versti leikur. Það er alltaf áfall þegar þú spilar svona illa. Við bjuggum aldrei til leik og stelpurnar eru mest svekktar með það,“ sagði Þorlákur en það var erfitt að horfa upp á mörk spænska liðsins sem voru einstaklega klaufaleg. „Mörkin voru mjög ódýr en það er ekki við neinn einn að sakast. Við unnum ekki nægilega vel saman sem lið og því fór sem fór. Við ætlum að vinna leikinn á sunnudaginn og við munum ekki spila svona leik aftur,“ segir Þorlákur en íslenska liðinu gekk afar illa að halda boltanum og létta af pressu spænska liðsins. „Það var vandamálið því það var eins og boltinn væri heitur. Við erum góðar í að halda boltanum innan liðsins og vorum ekki að sýna okkar réttu hlið í þeim efnum. Við þurfum að vinna í andlega þættinum það kom manni bara á óvart að leikmenn skyldu ekki ráða við spennustigið því það er mikil reynsla í þessu liði,“ sagði Þorlákur. „Það er enginn pressa á okkur fyrir þennan leik á sunnudaginn því fólk býst ekki við miklu eftir þetta. Við gírum okkur upp í það enda höfum við ágætan tíma til að fara yfir okkar leik,“ sagði Þorlákur að lokum.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira