Bronsið á NM í höfn eftir 19 stiga sigur á Norðmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 27. júlí 2011 17:51 Hlynur Bæringsson og Logi Gunnarsson voru stigahæstir á móti Norðmönnum. Mynd/Hag
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta tryggði sér bronsið á Norðurlandamótinu í Sundsvall með því að vinna 19 stiga sigur á Norðmönnum, 80-61, í lokaleik sínum í dag. Íslenska liðið endaði því mótið á tveimur sigurleikjum eftir að hafa tapað fyrstu tveimur leikjunum sínum á móti Finnum og Svíum. Þetta er í þriðja sinn á síðustu fjórum Norðurlandamótum sem íslenska liðið nær þriðja sætinu. Liðið náði líka bronsinu 2000 og 2002 en hafði endað í 4. sæti á NM 2006. Finnar urðu Norðurlandameistarar með miklum yfirburðum en þeir unnu úrslitaleikinn á móti Svíum með 22 stiga mun. Hlynur Bæringsson fór á kostum í leiknum á móti Norðmönnum og var með 22 stig og 13 fráköst. Logi Gunnarsson fylgdi eftir góðum leik á móti Dönum með því að skora 17 stig og Jakob Örn Sigurðarson skoraði 16 stig. Norðmenn voru fjórum stigum yfir eftir fyrsta leikhlutann, 14-18, en íslenska liðið tók völdin í öðrum leikhluta sem liðið vann með sextán stigum, 23-7, og var því 37-25 yfir í hálfleik. Logi Gunnarsson skoraði 12 stig í fyrri hálfleiknum og Hlynur Bæringsson var með tvennu í hálfleiknum, 11 stig og 10 fráköst. Íslenska liðið leit ekki til baka eftir þetta. Liðið vann þriðja leikhlutann 21-14 og var því komið með 19 stiga forskot fyrir lokaleikhlutann. Íslenska liðið vann leikinn að lokum með 19 stigum, 80-61.Stig Íslands í leiknum: Hlynur Bæringsson 22 (13 fráköst) Logi Gunnarsson 17 Jakob Örn Sigurðarson 16 Pavel Ermolinskij 9 (9 fráköst og 6 stoðsendingar)
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Stúkan er of þögul“ Fótbolti „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport Fleiri fréttir Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Sjá meira