Tónlist

Sagt að Amy hafi tekið of stóran skammt af eiturlyfjum

Amy var 27 ára þegar hún fannst látin á heimili sínu í gær
Amy var 27 ára þegar hún fannst látin á heimili sínu í gær Mynd/AFp
Dauði Amy Winhouse er enn óupplýstur. Hún fannst á heimili sínu í norður-London, látin, 27 ára að aldri. Í erlendum fjölmiðlum er haft eftir ónafngreindum heimildarmönnum að hún hafi látist af of stórum skammti fíkniefnum. Amy Winhouse átti í sífelldri baráttu við ávanabindandi efni og fór sú barátta fram fyrir allra augum.

Hún átti sér lítið einkalíf og fór inn og út úr meðferðum. Í síðasta mánuði hætti hún á tónleikaferðalagi sínu um evrópu eftir röð misheppnaðra tónleika þar sem hún gleymdi meðal annars textum og þurfti ósjaldan að yfirgefa sviðið að kröfu óánægðra áhorfenda. Amy Winhouse er frægust fyrir plötu sína Back to Black, sem var ein mest selda plata síðasta áratugar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.