Mourinho sleppur líklega við refsingu fyrir að pota í auga Tito Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. ágúst 2011 09:15 José Mourinho. Mynd/Nordic Photos/Getty
José Mourinho, þjálfari Real Madrid, átti stóran þátt í að magna upp hópslagsmálin í stórleik Barcelona og Real Madrid í spænska ofurbikarnum á miðvikudagaskvöldið þegar hann potaði viljandi í auga aðstoðarþjálfara Barcelona. Mourinho virðist hinsvegar ætla að sleppa við refsingu af því að dómari leiksins minntist ekkert á atvikið í skýrslu sinni. Tveir leikmenn fengu rautt eftir slagsmálin, David Villa fyrir að slá Mesut Ozil og Ozil fyrir að bregðast illa við því. Áður hafði Marcelo fengið rautt fyrir ruddatæklingu á Cesc Fábregas en sú tækling var keikjan að slagsmálunum. Dómarinn missti af poti Mourinho en sjónvarpsvélarnar náðu þessu hinsvegar þar sem portúgalski þjálfarinn labbaði rólega upp að Tito Vilanova og potaði í auga hans. Það virtist fyrst vera sem að Mourinho hafi klipið hann létt í kinnina en þegar betur var að gáð sást að Mourinho potaði í auga hans. Þegar Mourinho var spurður út í atvikið eftir leikinn kom hann af fjöllum og sagðist ekkert vita hver þessi "Pito" Vilanova sé. Hvort sem það var viljandi eða ekki þá kallaði Mourinho hann Pito sem er slanguryrði fyrir typpi á Spáni. Leikmenn og þjálfari Barcelona fordæmdu José Mourinho eftir leikinn og það er í það minnsta ljóst að hann hefur ekki eignast marga aðdáendur með svona framkomu.
Spænski boltinn Mest lesið Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Keppnin stoppuð eftir árekstur Leclerc Formúla 1 Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Fótbolti Yngsti sigurvegari í sögu Mónakó Formúla 1 Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira