Geir: Leitin hafin að næsta þjálfara Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. ágúst 2011 14:36 Geir Þorsteinsson og Ólafur Jóhannesson, landsliðsþjálfari. Mynd/Anton
Geir Þorsteinsson, formaður KSÍ, vildi ekki mikið tjá sig um þjálfaramál A-landsliðs karla en tilkynnt var í dag að Ólafur Jóhannesson myndi ekki halda áfram í starfinu þegar núverandi samningur hans rennur út. Ólafur tilkynnti í dag landsliðshópinn sem mætir Noregi ytra og Kýpur á heimavelli í byrjun næsta mánaðar. Blaðamaðafundurinn hófst á því að Geir tilkynnti ákvörðun KSÍ. „Ólafur mun ljúka sínum störfum þegar hans samningur rennur út um áramótin.“ Gengi íslenska landsliðsins hefur verið slæmt undir stjórn Ólafs. Liðið er í neðsta sæti síns riðils í undankeppni EM 2012 og hefur aldrei verið neðar á styrkleikalista FIFA. Nýr listi var gefinn út í gær og situr Ísland í 124. sæti Geir vildi lítið meira segja um aðdraganda þessarar ákvörðunnar. „Við ræddum þetta í sumar og þetta er löngu frágengið,“ sagði Geir. „Ástæðan fyrir þessu er fyrst og fremst sú að okkur hefur ekki gengið nógu vel.“ Hann var því næst spurður hvort að KSÍ væri byrjað að velta því fyrir sér hver ætti að taka við. „Það eina sem ég vil segja um þjálfaramál á þessum fundi er að leitin er hafin. Annað ætla ég ekki að segja. Við erum fyrst og fremst að einbeita okkur nú að þessum tveimur þýðingamiklu leikjum gegn Noregi og Kýpur. Leikmenn eru einbeittir og ég veit að þeir eiga eftir að standa sig. Við förum út í leikinn í Noregi af fullum krafti.“
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira