Fotbollskanalen: Lars Lagerbäck er í viðræðum við KSÍ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. september 2011 09:00 Lars Lagerbäck. Mynd/Nordic Photos/Getty
Sænski vefmiðillinn, Fotbollskanalen, hefur heimildir fyrir því að Lars Lagerbäck sé í viðræðum við íslenska knattspyrnusambandið um að taka við íslenska landsliðinu. Lagerbäck hitti forseta austurríska sambandsins í vikunni en síðan varð ekkert úr því að hann tæki við landsliði Austurríkis. „Ég veit ekkert um Austurríki en það er annað knattsyrnusamband sem er á eftir honum. Það er eitthvað sem hann verður að segja frá sjálfur. Það sem ég veit er að hann vill endilega fara að þjálfa aftur hvort sem það er landslið eða félagslið,” sagði Lars-Åke Lagrell, forseti sænska knattspyrnusambandsins. Lagrell segir að sænska knattspyrnusambandið muni ekki standa í vegi fyrir Lagerbäck vilji hann fara að vinna fyrir annað knattspyrnusamband. „Okkar samkomulag er þannig að hann ræður þessu sjálfur og við getum ekkert hindrað hann í að fara. Ég vildi helst sjá hann á varamannabekknum hjá sænsku liði en við ráðum því ekki og við höfum átt mjög gott samstarf við hann," sagði Lagrell. Lars Lagerbäck er 63 ára gamall og hefur þjálfað bæði sænska og nígeríska landsliðið. Hann hefur ekkert þjálfað síðan að hann hætti með Nígeríu eftir HM í Suður-Afríku árið 2010.
Íslenski boltinn Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Erfitt verkefni FH og Breiðablik til Póllands Hver var í flottustu treyjunni? Tufegdzic bræður til Malmö Stjarnan spilar aftur í Miðgarði Frá Keflavík til Noregs KSÍ kaupir pulsuna og búið er að koma henni fyrir á Laugardalsvelli Andrea Rán Snæfeld Hauksdóttir: ,,Hleyptum óþarfa stressi í leikinn” Guðni Eiríksson: ,,Við spilum fyrir þetta fólk og munum alltaf gera það” „Eins og þeir hafi bara engan áhuga á að vera þarna“ Draumurinn að rætast Brot Sveins Gísla það ljótt að ekki var hægt að endursýna Lögreglan hafði afskipti af Víkingum Myndaveisla: Á fimmta þúsund manns á stórleik KR og Víkings „Það er hrikalegt að sjá þetta“ „Í gær var ég að æfa nákvæmlega sama skot“ Ummæli Arons ekki svaraverð: „Ekki mikið vit í því sem hann er búinn að vera segja“ „Gæti óskað þeim til hamingju með titilinn núna“ Mörkin úr stórslag KR og Víkings í lýsingu Gumma Ben Sveinn Gísli braut bein í toppslagnum KR - Víkingur 1-1| Hjartahnoð Arnórs Ingva á síðustu stundu Söngur og gleði hjá KR-ingum fyrir leik Slær Aron markametið í kvöld? „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Sjáðu Stjörnuna klára Blika Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Sjáðu geggjað mark Kristófers og öll hin úr Bestu Sjá meira