Gary Martin valinn bestur í 1. deild karla - Jón Daði efnilegastur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. september 2011 19:00 Gary Martin í leik á móti Þrótti. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Skagamaðurinn Gary Martin var í kvöld valinn besti leikmaður 1. deildar karla í fótbolta í sumar en vefsíðan Fótbolti.net fékk þjálfara og fyrirliða deildarinnar til að velja úrvalslið deildarinnar sem og besta leikmanninn, besta þjálfarann og efnilegasta leikmanninum. Gary Martin fór fyrir Skagaliðinu í sumar sem tryggði sér sæti á ný í úrvalsdeild karla. Martin skoraði 9 mörk í 16 leikjum í deildinni í sumar og átti einnig margar stoðsendingar á félaga sína. Martin kláraði þá ekki tímabilið með ÍA því hann fór á láni til danska félagsins Hjörring á láni um miðjan ágúst. Þórður Þórðarson, þjálfari ÍA, var valinn besti þjálfarinn og Selfyssingurinn Jón Daði Böðvarsson var kosinn efnilegasti leikmaður deildarinnar. Gary Martin er einn af fimm Skagamönnum í úrvalsliðinu en það má sjá úrvalsliðið hér fyrir neðan. Selfyssingar eiga tvo menn í liðinu en ekkert annað félag á fleiri en einn leikmann í liði ársins. Það má finna ítarlegri umfjöllun um verðlaun Fótbolti.net með því að smella hér.Úrvalslið 1. deildar karla 2011:Markvörður: Kristján Finnbogason (Grótta)Varnarmenn: Illugi Þór Gunnarsson (Fjölnir) Reynir Leósson (ÍA) Guðjón Heiðar Sveinsson (ÍA) Haukur Heiðar Hauksson (KA)Miðjumenn: Mark Doninger (ÍA) Babacarr Sarr (Selfoss) Jón Daði Böðvarsson (Selfoss)Sóknarmenn: Gary Martin (ÍA) Hjörtur Júlíus Hjartarson (ÍA) Sveinbjörn Jónasson (Þróttur)
Íslenski boltinn Mest lesið Segir fótboltamönnum að halda sig frá McGregor Fótbolti Hareide segir að þjálfaraferlinum sé lokið Fótbolti Baldur galdraði fram vörnina sem sló Ítalina kalda Körfubolti Harry Potter í ástralska landsliðinu Sport Arnar betur í stakk búinn en Eyjólfur og Arnar Þór Fótbolti Arnar og Freyr taldir líklegastir til að taka við af Hareide Fótbolti HK gaf leik gegn Herði: „Ekki nýtt vandamál fyrir okkur á landsbyggðinni“ Handbolti Carragher segir Salah vera eigingjarnan Enski boltinn Hélt hreinu á móti Manchester City ökklabrotinn Enski boltinn Þjálfari FH með hljóðnema á sér: „Massa reynsla hérna í bland við massa greddu“ Handbolti Fleiri fréttir Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Kristófer áfram í Kópavogi Höttur hlaut aftur langhæsta styrkinn: „Virkilega góð lyftistöng“ Damir á leið til Asíu Sjá meira