Stelpurnar töpuðu með fimm mörkum á Spáni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2011 17:31 Mynd/Daníel
Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með fimm mörkum fyrir Spáni, 27-22 í fyrsta leik sínum í undankeppni EM 2012 en leikurinn fór fram í Madríd á Spáni. Íslenska liðið lenti mest níu mörkum undir en minnkaði muninn í lokin með góðum endaspretti. Hanna Guðrún Stefánsdóttir var markahæst með sex mörk, hin unga Birna Berg Haraldsdóttir var með fimm mörk og Stella Sigurðardóttir skoraði fjögur mörk. Spænska liðið labbaði hvað eftir annað í gegnum íslensku vörnina á sama tíma og íslenska liðinu gegn illa gegn framliggjandi vörn spænska liðsins. Frönsku dómararnir voru heldur ekki að hjálpa mikið til enda fuku íslensku stelpurnar mikið útaf í leiknum. Íslenska lenti strax undir í upphafi leiks en slæmur kafli um miðjan hálfleikinn þýddi að spænska liðið komst í 10-5. Íslenska liðið minnkaði muninn aftur niður í þrjú mörk en Spánn var 13-9 yfir í hálfleik. Spænska liðið skoraði tvö fyrstu mörkin í seinni hálfleik og komst sex mörkum yfir, 15-9, og bætti svo um betur með því að skora fimm mörk í röð og ná níu marka forskoti, 20-11. Ágúst tók þá leikhlé enda var spænska liðið búið að skora úr 20 af 23 skotum sínum. Íslenska liðið náði að laga stöðuna með því að skora 7 mörk gegn 2 og minnka muninn í 24-20 en þá voru rúmar sex mínútur eftir af leiknum. Spænska liðið tók þá aftur við sér og vann að lokum með fimm mörkum eftir að Ólöf Kolbrún Ragnarsdóttir varði víti í lokin. Íslenska liðið fær Úkraínu í heimsókn í öðrum leik sínum sem fer fram í Laugardalshöllinni á sunnudaginn kemur.
Íslenski handboltinn Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira