Ragna og Ásdís fengu hálfa milljón - úthlutun úr Afrekskvennasjóði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. nóvember 2011 19:00
Fjórar íþróttakonur og tvö sérsambönd fengu styrk í dag þegar tilkynnt var um áttundu úthlutun úr afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍ. Frjálsíþróttakonan Ásdís Hjálmsdóttir og badmintonkonan Ragna Björg Ingólfsdóttir fengu báðar hálfa milljón og danskonurnar Hanna Rún Óladóttir og Sara Rós Jakobsdóttir fengu báðar 250 þúsund krónur. Sundsamband Íslands og Handknattleikssamband Íslands fengu síðan bæði eina milljón í styrk, Sundsambandið vegna verkefna afrekskvennahóps SSÍ en Handknattleikssambandið vegna lokakeppni HM sem fer fram í Brasilíu 3. – 18. desember næstkomandi. Afrekskvennasjóður Íslandsbanka og ÍSÍ var stofnaður með framlagi bankans árið 2007. Markmið og tilgangur sjóðsins er að styðja við bakið á afrekskonum í íþróttum og gera þeim betur kleift að stunda sína íþrótt og ná árangri. Stjórn sjóðsins skipa þær Svafa Grönfeldt, Vanda Sigurgeirsdóttir og Þórdís Gísladóttir. Umsóknir um styrk voru að þessu sinni 50 talsins.Áttunda úthlutun úr Afrekskvennasjóði Íslandsbanka og ÍSÍReykjavík 3. nóvember 2011.Hanna Rún Óladóttir danskona, 250.000. Hanna Rún sem keppir fyrir Dansíþróttafélag Kópavogs hefur unnið Íslandsmeistaratitil 15 ár í röð og alls 24 á þeim árum. Dansherra hennar er Sigurður Þór Sigurðsson. Á árinu unnu þau sér keppnisrétt á Heimsbikar, Evrópu og Heimsmeistaramótum í latin dönsum. Náðu þau 16. sæti á EM í Frakklandi sem er besti árangur sem íslenskt danspar hefur náð á þessu móti. Á HM í Singapore í september komust þau í aðra umferð og enduðu í 25. sæti.Sara Rós Jakobsdóttir danskona, 250.000 vegna undirbúnings og þátttöku á Heimsbikar-, Evrópu-, og Heimsmeistaramótum á árinu. Sara Rós og dansherra hennar Sigurður Már Atlason hafa dansað saman í 11 ár, keppa þau fyrir Dansíþróttafélag Hafnarfjarðar. Hafa þau þegar keppt á um 40 mótum erlendis. Síðastliðin þrjú ár hafa þau hlotið útnefningu sem danspar ársins hjá Dansíþróttasambandi Íslands. Á HM í standard dönsum sem fram fóru í Moskvu um síðustu helgi komust Sara Rós og Sigurður Már í aðra umferð og enduðu í 47. sæti.Ásdís Hjálmsdóttir frjálsíþróttakona, 500.000 vegna undirbúnings þátttöku á Ólympíuleikunum í London á komandi ári. Ásdís sem keppir fyrir Ármann hefur þegar náð lágmarki á leikana í spjótkasti. Á síðasta Evrópumeistaramóti komst Ásdís í úrslit þar sem hún endaði í 10 sæti. Á HM sem fram fór í Daegu í Kóreu í ágúst var Ásdís hársbreidd frá því að komast í úrslit þegar hún endaði í 13 sæti. Framundan eru stífar æfingar og keppni sem miða að því að undirbúa Ásdísi sem best og auka líkur á því að hún nái takmarki sínu um að komast í úrslit á Ólympíuleikunum í London 2012.Ragna Björg Ingólfsdóttir badmintonkona úr TBR, 500.000 vegna keppni á mótum á komandi mánuðum með það að markmiði að tryggja sér þátttökurétt á ÓL í London 2012. Frá september og út apríl keppir Ragna á 14 alþjóðlegum mótum. Heimslistinn sem gefinn er út 3. maí 2012 gildir þegar keppnisréttur á Ólympíuleikana er ákveðinn. Skiptir því máli að standa sem best að vígi þá. Á heimslistanum er Ragna sem stendur í 75. sæti. Ragna er stödd í Þýskalandi þar sem hún tekur þátt í alþjóðlegu móti, á hún leik í annarri umferð mótsins í dag.Sundsamband Íslands, 1.000.000 vegna verkefna afrekskvennahóps SSÍ. Sundkonur úr hópnum kepptu á HM í Shanghai í Kína í ágúst s.l. Nú framundan er barátta kvennanna við að tryggja sér þátttökurétt á ÓL í London á næsta ári. Vegna breyttra reglna um þátttökurétt sundfólks á Ólympíuleikum er óvissa um hversu margar sundkonur ná að tryggja sér þátttökurétt á komandi Ólympíuleikum. Eru sundkonurnar á faraldsfæti við æfingar og keppni á komandi mánuðum. Af næstu mótum má meðal annars nefna NM unglinga og EM í 25 m. laug sem fram fara á þessu ári. Í hópnum eru þær Hrafnhildur Lúthersdóttir, Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ragnheiður Ragnarsdóttir, Erla Dögg Haraldsdóttir og Ingibjörg Kristín Jónsdóttir.Handknattleikssamband Íslands, 1.000.000 vegna lokakeppni HM sem fer fram í Brasilíu 3. – 18. desember n.k. Íslenska kvennalandsliðið tók þátt í úrslitakeppni EM 2010 í fyrsta skipti. Þar hafnaði liðið í 15. sæti. Í ár náði liðið að fylgja árangrinum eftir og tryggja sér þátttökurétt á lokamót HM fyrst íslenskra kvennaliða í hópíþrótt. Tókst það með því að sigra lið Úkraínu í tveimur umspilsleikjum um laust sæti á mótinu. Framundan eru tveir æfingaleikir við Tékka hér heima 25. – 26. nóvember sem er liður í lokaundirbúningi liðsins fyrir HM.
Innlendar Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Sport Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Körfubolti Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Golf Fleiri fréttir „Talar ekki um eggið fyrr en hænan er búin að verpa“ Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Stálheppinn þegar hann sló í hrífu og hélt toppsætinu Stjörnurnar fögnuðu og hátíð á götum New York eftir sigur á meisturunum Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Gunnar mætir þrautreyndum kappa í sumar Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Friðrik Ingi hættur með Hauka Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn Sjá meira