Dikta stefnir enn hærra 14. nóvember 2011 12:00 Dikta stefnir enn hærra með nýju plötunni.
Það eru eflaust einhverjir sem bíða spenntir eftir fjórðu breiðskífu hljómsveitarinnar Diktu, Trust Me. Hún dettur í hús hjá plötubúðum á föstudaginn en síðasta plata sveitarinnar, Get It Together, náði platínumsölu og vel það. Dikta ætlar að fagna nýju plötunni með útgáfutónleikum á Nasa við Austurvöll fimmtudagskvöldið 24. nóvember og segjast ætla engu til að spara til að gera þetta veglegustu tónleika sveitarinnar hingað til. Þar verður án efa mikil stemmning enda hlaut sveitin Íslensku tónlistarverðlaunin síðastliðin tvö ár sem vinsælasti flytjandi landsins. Þá hefur sveitin unnið að því undanfarin misseri að fylgja síðustu plötu eftir með tónleikaferðum til Evrópu og Ameríku en platan kom út víða erlendis. Trust Me inniheldur ellefu lög sem "taka hlustandann með sér í rússibanareið um allan tilfinningaskalann. Hressandi rokk, ljúfar og fallegar ballöður og allt þar á milli," eins og segir í tilkynningu. Liðsmenn Diktu drógu sig í hlé stóran part af þessu ári og lögðust undir feld til að einbeita sér að gerð þessarar nýju plötu. Trust Me verður fáanleg í forsölu á tónlist.is frá og með þriðjudeginum 15. nóvember. Þá er byrjað að selja miða á útgáfutónleikana í næstu viku og eru þeir fáanlegir á midi.is.
Tónlist Mest lesið Ekki smart að amman skipti sér af getnaðinum Lífið „Ég fæ það bara um leið og ég set hann inn“ Lífið Þessi lönd komust áfram í úrslit Lífið Komast ekki áfram nema þeir séu á skjánum Lífið Vaktin: Komast Væb-bræður áfram? Lífið Egill í SuitUp keypti glæsiíbúð undir fasteignamati Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun Stendur fyrir auðmannsgleði í Elliðaárdal Menning „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið Formleg spá og ítarleg greining á keppendum kvöldsins Lífið Fleiri fréttir „Maður er í elífu straffi sem tónlistarmaður, getur ekki gert neitt annað“ Óhræddir við raunverulegar tilfinningar Kaleo með tónleika á Íslandi í fyrsta sinn í áratug Davíð í Kaleo bjó til flöskutrommusett Fimmtán ára og gefur út frumsamda plötu Elti ástina til Íslands „Þetta er allt partur af plani hjá guði“ Eyddi unglingsárunum inni í þvottahúsi Gefa út sína fyrsta plötu síðan 2001 Þrumustuð þegar lag Barnamenningarhátíðar var frumflutt Sækir innblásturinn í rússnesku ræturnar Sjá meira