Aganefnd HSÍ ætlar að nota myndirnar úr Eyjum sem sönnunargagn Hans Steinar Bjarnason skrifar 30. nóvember 2011 10:15
Aganefnd HSÍ ætlar að taka fyrir atvik í leik í leik í fyrstu deild á dögunum og beita því sjaldgæfa úrræði að nota myndbandsupptöku sem sönnunargagn. Eins og fram kom í fréttum Stöðvar 2 í síðustu viku gerðist það í leik ÍBV og Selfoss að leikmaður Eyjamanna kýldi mótherja sinn eftir að mótherjinn hafði losað sig við boltann. Hvorugur dómaranna sá atvikið og því benti fátt til annars en að leikmaðurinn, Davíð Þór Óskarsson slyppi án refsingar fyrir kjaftshöggið. En nú hefur aganefnd HSÍ ákveðið að taka atvikið fyrir samkvæmt heimildum Stöðvar 2. Í reglugerð HSÍ segir að það „sé grundvallarregla að myndbandsupptökur skulu ekki notaðar við ákvörðun refsingar nema mat aganefndarinnar sé annað“ eins og raunin er nú í þessu tilfelli. Íþróttadeild er aðeins kunnugt um að tvisvar hafi verið gripið til þessa ráðs og þá til að leiðrétta brottvísun á röngum leikmanni. Ómögulegt er að segja hvaða refsingu Davíð á í vændum fyrir kjaftshöggið en svipað mál er á borði aganefndar sænska handboltasambandsins og samkvæmt frétt sænska ríkissjónvarpsins á viðkomandi leikmaður margra leikja bann yfir höfði sér.
Íslenski handboltinn Mest lesið Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Byrjaði mótið með enga styrktaraðila og áhyggjur af hótelkostnaði Sport Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport Fleiri fréttir Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ Sjá meira