FIA staðfesti 15 af 24 Formúlu 1 ökumönnum fyrir næsta tímabil 1. desember 2011 14:15 Ökumennirnir í síðasta mótinu í Brasilíu á sunnudaginn stilltu sér upp fyrir myndatöku, en ljóst er að þeir keppa ekki allir á næsta tímabili. AP MYND: Silvia Izquierdo
Sjö Formúlu 1 lið hafa tilkynnt hvaða ökumenn keppa með liðunum á næsta ári til FIA, alþjóðabílasambandsins. Eitt lið hefur tilkynnt annan ökumanninn, en fjögur lið hafa ekki tilkynnt hvaða ökumenn keyra með liðunum samkvæmt lista sem FIA sendi frá sér í gær. Samkvæmt listanum eru því 15 af 24 ökumönnum sem keppa á næsta ári staðfestir, enn sem komið er. FIA staðfesti hvaða ökumenn keppa með liðum Red Bull, McLaren, Ferrari, Mercedes, Sauber, Caterham og Marussia á næsta ári. Aðeins annar ökumaðurinn sem keppir með Lotus Renault (kallast Renault á þessu ári) hefur verið tilkynntur. Ekki er ljóst hverjir keyra hjá liðum Force India, Torro Rosso, Williams og HRT. Kimi Raikkönen var í vikunni formlega tilkynntur sem ökumaður Renault, en liðiði mun heita Lotus Renault á næsta ári. Vitaly Petrov er með áframhaldandi samning við liðið fyrir næsta ár, en engu að síður hefur liðið ekki staðfest að hann keppi með liðinu. Eric Bouiller sagði í frétt á autosport.com í vikunni að Renault ætti enn eftir að taka ákvörðun um hver myndi aka með Raikkönen hjá liðinu. Bruno Senna ók með liðinu í ár eftir að hafa tekið sæti Nick Heidfeld. Pedro de la Rosa var kynntur sem ökumaður HRT liðsins á næsta ári á dögunum og gerði hann tveggja ára samning við liðið, en hann var samt ekki kominn á lista FIA. Viantonio Liuzzi og Daniel Ricciardo óku bílum HRT liðsins í síðasta móti ársins, en Narain Karthikeyan kom einnig við sögu hjá liðinu á árinu. Charles Pic verður nýliði í Formúlu 1 á næsta ári sem ökumaður hjá Marussia liðinu ásamt Timo Glock. Force India liðið hefur verið í viðræðum við Paul di Resta, Adrian Sutil og Nico Hülkenberg um sæti á næsta ári, en tveir fyrrnefndu ökumennirnir óku bílum liðsins á þessu ári. Jamie Alguersuari og Sebastian Buemi óku með Torro Rosso á árinu, en liðið hefur ekki staðfest áframhaldandi samning við þá, enn sem komið er. Pastor Maldonado og Rubens Barichello óku með Williams á þessu keppnistímabili, en liðið hefur ekki staðfest við FIA að þeir keyri á næsta ári og hefur verið í viðræðum við ýmsa ökumenn varðandi hugsanlegt starf hjá liðinu á næsta ári. Autosport.com segir að Williams sé að skoða að ráða Adrian Sutil til liðsins, en Maldonado hefur sagt á sama miðli að hann sé með tryggt sæti hjá Williams. Að neðan er listi yfir staðfesta ökumenn samkvæmt lista FIA fyrir næsta ár og er þeim raðað upp eftir rásnúmerum bíla þeirra, sem FIA hefur gefið út. Enginn ökumaður fær rásnúmerið 13. Staðfestir ökumenn 2012 1. Sebastian Vettel, Red Bull 2. Mark Webber, Red Bull 3. Jenson Button, McLaren 4. Lewis Hamilton, McLaren 5. Fernando Alonso, Ferrari 6. Felipe Massa, Ferrari 7. Michael Schumacher, Mercedes 8. Nico Rosberg, Mercedes 9. Kimi Raikkönen, Lotus 10. óstaðfest, Lotus 11. óstaðfest, Force India 12. óstaðfest, Force India 14. Kamui Kobayashi, Sauber 15. Sergio Perez, Sauber 16. óstaðfest, Torro Rosso 17. óstaðfest, Torro Rosso 18. óstaðfest, Williams 19. óstaðfest, Williams 20. Heikki Kovalainen, Caterham 21. Jarno Trulli, Caterham 22. óstaðfest, (HRT) 23. óstaðfest, (HRT) 24. Timo Glock, Marussia 25. Charles Pic, Marussia
Mest lesið Eldræða Rikka G í beinni: „Að gera drengnum þetta er bara ljótt“ Fótbolti Gunnar Nelson með ákall til ráðamanna: „Er hálf galið“ Sport Liverpool tapaði aftur í Tyrklandi Fótbolti Viggó á leið í topplið í bestu deild í heimi? Handbolti Landsliðskonur Íran strjúka eftir Asíumótið Fótbolti Hrósar Heimi og vill að hann hermi eftir Arsenal Fótbolti Allt undir þegar peningakarlinn mætir með Shabazz á Krókinn Körfubolti Flautumark kramdi drauma norðursins um sigur gegn Börsungum Fótbolti Tottenham í martraðarlandi og dagar Tudor taldir? Fótbolti „Ísak getur verið okkar framtíðar markvörður“ Handbolti Fleiri fréttir Tækluðu spurningu sem brennur á öllum eftir fyrstu keppni tímabilsins Verstappen tikkar af golulistanum Hamilton bjartsýnn á að Ferrari geti orðið meistari Komst hjá hörðum árekstri með ótrúlegum viðbrögðum Mercedes á toppnum en Ferrari fullt eftirsjár Russell á ráspól en Verstappen klessti út í kant Týndi sjálfum sér: „Sérð þessa manneskju ekki aftur“ Keppnir í hættu vegna stríðsins Hræddur um að hljóta varanlegan taugaskaða við að aka Formúlu 1 bíl Hamilton skýtur fast á andstæðinga sína Hamilton bjartsýnn: „DNA-ið mitt er í þessum bíl“ „Stormur í vatnsglasi“ Lewis Hamilton finnst skemmtilegra að keyra nýja F1-bílinn Finnst ekki skemmtilegt að keyra nýja Formúlu 1 bílinn Formúlu 1 ökuþór slapp ómeiddur frá bílslysi Heimsmeistarinn býst við meiri ringulreið í formúlunni Sjá meira