Formúla 1

Ver­stappen tók fram úr hundrað ökuþórum

Aron Guðmundsson skrifar
Max Verstappen átti ekki í neinum vandræðum með að taka fram úr 100 ökuþórum
Max Verstappen átti ekki í neinum vandræðum með að taka fram úr 100 ökuþórum Samsett mynd

Fjórfaldi Formúlu 1 heimsmeistarinn Max Verstappen stóðst áhugaverða áskorun með glæsibrag þegar hann tók fram úr 100 go-kart ökuþórum.  

Áskorunin var þess eðlis að Verstappen ræsti aftastur og var með 100 ökuþóra á go-kart körtum fyrir framan sig og fékk að hámarki 35 hringi eða 75 mínútur til þess að taka fram úr þeim öllum. 

Óhætt er að segja að Verstappen hafi staðist áskorunina með glæsibrag því það tók Hollendinginn aðeins fjórtán hringi til þess að taka fram úr öllum. 

Fyrsti hringur keppninnar var kaotískur og fór Verstappen úr því að vera í 101. sæti yfir í að vera í 37. sæti. 

Hann tók síðan fram úr hverjum ökuþórnum á fætur öðrum og þegar komið var fram á fjórtánda hring keppninnar hafði Verstappen tekið fram úr öllum. 

Myndbönd af áskoruninni hafa vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum enda sést Verstappen þar sýna snilli sína. 

„Ég var áhyggjufullur í byrjun þegar að ég sá 100 go-kart bíla fyrir framan mig en eftir fyrsta hringinn sá ég að ég væri með fulla stjórn á þessu. Ég hafði virkilega gaman að þessu,“ sagði Verstappen í viðtali eftir áskorunina. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×