Erum töluvert stærri og þyngri en þær Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 26. júlí 2011 07:00 Guðmunda Brynja Óladóttir hefur skorað 13 mörk í 17 leikjum með 17 ára landsliðinu.
Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu skipað leikmönnum 17 ára og yngri hélt í gærkvöldi til Sviss. Fram undan er undanúrslitaleikur við Spán á fimmtudag en Spánverjar eru ríkjandi Evrópumeistarar í þessum aldursflokki. „Þetta verður mjög erfitt en við ætlum að gefa allt í þetta og taka þennan leik,“ segir Lára Kristín Pedersen, miðjumaður íslenska liðsins. Lára Kristín, sem leikur með Aftureldingu, er kokhraust og segir íslenska liðið eiga von. „Að sjálfsögðu eigum við möguleika. Við erum búnar að standa okkur alveg jafnvel og þær, jafnvel betur. Við ætlum að sýna hvað við getum,“ segir Lára Kristín sem segir samheldnina, hjartað og föðurlandsástina vera styrk íslenska liðsins. Leið íslenska liðsins í undanúrslit hefur verið löng og ströng en íslenska liðið hefur farið á kostum. Liðið lagði Litháen, Búlgaríu og Ítalíu með yfirburðum í undankeppninni síðastliðið haust. Í vor urðu Englendingar, Pólverjar og Svíar á vegi íslensku stúlknanna. Sex sigrar og markatalan 37-2 gefur tilefni til þess að ætla að íslenska liðið sé sterkt. „Styrkur okkar er hve vel við þekkjumst. Það er mikil samheldni í hópnum og engin skilin út undan,“ segir Selfyssingurinn Guðmunda Brynja Óladóttir, framherji íslenska liðsins. „Við erum töluvert stærri og þyngri en þær. Við eigum að vera sterkari í föstum leikatriðum og eigum að vinna þær þar. Við ætlum að láta finna fyrir okkur,“ segir Guðmunda sem er leikjahæst í íslenska liðinu. Íslenska landsliðið lenti í 5. sæti á Norðurlandamótinu í sumar en þá voru stúlkurnar fæddar árið 1994 ekki gjaldgengar. Liðið vann Svía, gerði jafntefli við Þjóðverja og Norðmenn en tapaði gegn Frökkum. Ísland mætir Spáni á fimmtudaginn klukkan 12 á hádegi. Í hinni undanúrslitaviðureigninni mætast Þýskaland og Frakkland. Leikið verður um sæti um næstu helgi.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira