Dóttir Gaddafís eignaðist barn 31. ágúst 2011 05:00 Á veggspjaldi er lýst eftir Múammar Gaddafí. nordicphotos/AFP
Dóttir Gaddafís hefur eignast barn í Alsír, en þangað fór hún ásamt móður sinni og tveimur bræðrum á mánudag. Talsmaður Alsírsstjórnar segir fjölskyldunni veitt hæli vegna þess að dóttirin var barnshafandi. Uppreisnarmenn í Líbíu segja óskiljanlegt að fjölskylda hafi fengið hæli í Alsír. „Við erum staðráðnir í að handtaka og færa fyrir rétt alla Gaddafí-fjölskylduna, þar með Gaddafí sjálfan," segir Mahmoud Shammam, talsmaður uppreisnarmanna. Enn er ekkert vitað hvar Gaddafí er niðurkominn þótt ýmsar tilgátur hafi verið nefndar. Roland Lavoie, talsmaður NATO, segir að bandalagið muni áfram styðja við uppreisnarmenn í Líbíu. Það verði gert meðan almenningur er enn í hættu, jafnvel þótt svæðið í kringum höfuðborgina Trípólí sé orðið „frjálst að mestu", eins og hann orðaði það. Hann segir uppreisnarmenn eiga í viðræðum við stuðningsmenn Gaddafís í borginni Sirte, þar sem stjórnarherinn sýnir engin merki uppgjafar. Mustafa Abdel Jalil, leiðtogi bráðabirgðastjórnar uppreisnarmanna, segir að þeim viðræðum verði ekki haldið áfram lengur en fram á laugardag, þegar lokahátíð föstu-mánaðar múslima lýkur. - gb
Erlent Fréttir Mest lesið Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Innlent Hópuppsögn á sviði heilsu- og líkamsræktar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Fleiri fréttir Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Átta látin og átján saknað eftir að ferju hvolfdi við Kýpur Óttast um fimmtán manns í kjölfar skyndiflóðs í Miklagljúfri Íranir svara fyrir sig og Trump ýjar að árásum á Kharg-eyju Loftárásir á Hormússundi hafnar á ný Rýmdi grunnskólann augnablikum áður en skyndiflóð skall á Bresk kona stungin til bana á lestarstöð í Þýskalandi Haraldur Noregskonungur jarðsunginn 9. september Sjá meira