Tónlist

Fönguðu kraftinn á einni helgi

Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, var tekin upp á einni helgi í desember í fyrra.
Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, var tekin upp á einni helgi í desember í fyrra.
Önnur plata Hellvar, Stop That Noise, kemur út á miðvikudaginn. „Við tókum hana „live“ upp á einni helgi í desember. Aron Arnarsson var á tökkunum og þetta var hugmynd frá honum. Hann hafði verið á tökkunum hjá okkur á Airwaves og sagðist vilja fanga kraftinn hjá okkur. Það var alveg hárrétt ákvörðun hjá honum,“ segir Elvar Geir Sævarsson.

Um tónjöfnun (mastering) á plötunni sá JJ. Golden frá Golden Mastering, sem hefur unnið með böndum eins og Primus, Sonic Youth, Calexico og Neurosis.

Fyrsta plata Hellvar kom út fyrir fjórum árum og hefur ýmislegt breyst síðan þá. Sveitin var upphaflega dúett Elvars Geirs og Heiðu Eiríksdóttur en er núna kvintett. „Síðasta plata var bara með forrituðum trommuheila. Við vorum að daðra við elektróníska músík en núna er þetta mest bara keyrslurokk.“

Hellvar heldur útgáfu- og hlustunarpartý í Nýlenduvöruverzlun Hemma og Valda á miðvikudagskvöld. Þá verður nýr meðlimur kynntur til leiks, Haukur Viðar Alfreðsson úr Morðingjunum sem tekur við bassanum af Sverri Ásmundssyni. - fb






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.