Tónlist

Mills alltaf velkominn

Tómas M. Tómasson spilaði með Mike Mills á tónleikum á Ob-la-di Ob-la-da í ágúst.
Tómas M. Tómasson spilaði með Mike Mills á tónleikum á Ob-la-di Ob-la-da í ágúst. Fréttablaðið/GVA
Mike Mills úr R.E.M. kom til Íslands með konu sinni í ágúst og söng með Bítladrengjunum blíðu á skemmtistaðnum Ob-la-di Ob-la-da við Frakkastíg.

„Við máttum ekki kynna hann sem bassaleikarann í R.E.M. Hann var bara Mike Mills frá Aþenu í Georgíu," segir Tómas M. Tómasson, Stuðmaður og meðlimur Bítladrengjanna blíðu. „Ég rétti honum bassann en hann vildi ekki spila og sagði: „Þú kannt þetta miklu betur en ég". Mills söng með þeim nokkur lög, þar á meðal Back in the USSR og Revolution.

„Þetta var einkar geðugur náungi. Hann var að koma úr ferðalagi um Austur-Evrópu og var á leiðinni heim. Hann var mjög hrifinn af bandinu okkar og konan hans sem er tónlistargagnrýnandi var líka hrifin af okkur," segir Tómas. Þau skildu eftir sig netfang og sendu Bítladrengirnir þeim kveðju í kjölfarið. „Við eigum eftir að senda þeim myndir og dót og gerum það við tækifæri."

Tómas og félagar spila á Obladí- Oblada á hverju þriðjudagskvöldi og segir hann Mills alltaf velkomið að stíga með þeim upp á svið. Spurður hvað honum finnist um endalok R.E.M. segir hann: „Þetta tekur allt sinn enda. Ég vona bara að þeir hafi hætt í sátt og samlyndi."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.