Hanna hús fyrir Ford 6. október 2011 20:00 Kristján Örn Kjartansson hjá KRADS.
Sterkt ytra form og samspil þess við dýnamískt innra rými sýningarsalarins, sem og vel hugsuð tengsl við umhverfið, er talið einkenna bygginguna. Arkitektastofan KRADS á heiðurinn að hönnun nýrrar sýningar- og þjónustubyggingar fyrir bílaframleiðandann Ford í Danmörku sem á að taka í notkun 2013. Byggingin verður 4.400 fermetrar og mun meðal annars innihalda 2.000 fermetra sýningarsvæði, verkstæði og söluskrifstofur. „Við erum auðvitað í skýjunum yfir því að okkar tillaga skyldi hafa verið valin til framkvæmda í útboði á vegum borgarstjórnar Herning á Jótlandi. Sérstaklega í ljósi þess að Ford var með lægsta tilboðið í lóðina sem sýnir kannski fram á hversu skotheld hugmyndin er,“ segir Kristján Örn Kjartansson, einn þriggja eigenda að stofunni. Í umsögn borgarstjórnar segir: „…tillagan sýnir hvernig hægt er með sterkri sýn að útfæra byggingu sem á sannfærandi hátt uppfyllir kröfur um notagildi, er … spennandi og nýskapandi um leið og hún myndar sterk tengsl við umhverfi sitt. Byggingin getur orðið lyftistöng fyrir svæðið í heild sinni og setur nýjan staðal fyrir framkvæmdir á svæðinu og ekki síst fyrir arkitektúr bílasöluhúsa.“„Sýningarsvæðið er hugsað sem einn rampi eða spírall sem leiðir gesti um landslag útstilltra bíla,“ segir Kristján.Inntur út í lofsamlegu ummælin segir Kristján KRADS-liða einfaldlega hafa gert sitt besta til að uppfylla sett skilyrði. „Annars vegar borgarstjórnarinnar um fallega byggingu sem blasir við þegar komið er inn í Herning. Hins vegar kröfu Ford um byggingu sem sérstök upplifun fylgir að koma inn í,“ segir Kristján og lýsir hugmyndinni. „Sýningarsvæðið er hugsað sem einn samfelldur rampi eða spírall sem leiðir gesti um landslag útstilltra bíla, allt frá grasi vöxnu frístundasvæði utan byggingarinnar, í gegnum tíu metra hátt sýningarrýmið og upp á þak,“ útskýrir hann og segir pælinguna svipa til Guggenheim-safnsins í New York. „Nema þarna liggja sýningarsalirnir ekki út frá ganginum heldur er rampinn einn stór sýningarsalur.“ Kristján telur erfitt að gera sér í hugarlund hvað þýðingu samstarf við Ford muni hafa. „Vonandi ætlar framleiðandinn sér bara fleiri hluti í Danmörku og aldrei að vita hvað það gefur af sér ef þetta verkefni heppnast vel,“ segir hann. roald@frettabladid.is
Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Synir Britney gengu tískupallinn í París „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Sjá meira