Ný plata frá Diktu 27. október 2011 06:00 Strákarnir í Diktu snúa aftur um miðjan nóvember með nýja plötu.
Umslag nýju plötunnar með Diktu er stórglæsilegt. Dikta sló í gegn með plötunni Get it Together fyrir tveim árum. Ný plata er væntanleg frá hljómsveitinni og glæsilegur fálki prýðir umslagið. "Þetta verður ellefu laga meistaraverk,“ segir Haukur Heiðar Hauksson, söngvari og gítarleikari hljómsveitarinnar Diktu. Dikta sendir frá sér fjórðu breiðskífuna sína um miðjan nóvember. Platan hefur fengið nafnið Trust Me, en von er á laginu What Are You Waiting For? í útvarpsspilun í þessari viku. Umslag plötunnar er eftir myndlistarmanninn Heimi Björgúlfsson, sem býr í Los Angeles í Bandaríkjunum. "Við kynntumst verkum hans á netinu og svo hitti ég hann þegar ég var í LA í sumar,“ segir Haukur. Dikta sló í gegn með síðustu plötu sinni, Get It Together, sem kom út árið 2009. Platan seldist í þúsundum eintaka og lögin Thank You, From Now On og Just Getting Started hafa notið gríðarlegra vinsælda og flakkað á milli flestra útvarpsstöðva landsins.
Harmageddon Mest lesið Októberfest SHÍ: Blanda af Airwaves og Þjóðhátíð Harmageddon Daft Punk koma fram á Grammy verðlaununum á næsta ári Harmageddon Sannleikurinn: Sjúklingur tafði mikilvæga ostasendingu Harmageddon Sannleikurinn: Foreldrar sem hata börnin sín ekki líklegir til að bólusetja þau Harmageddon Sannleikurinn: "Það er engin hálka í Reykjavík“ Harmageddon Harmageddon fer til Færeyja Harmageddon Púlsinn 14.ágúst 2014 Harmageddon Heitasti kvensjúkdómalæknir í heimi Harmageddon Undirheimarnir of brútal fyrir skáldsögur Harmageddon „Þið hafið fengið aðvörun, við erum að koma“ Harmageddon