Lífið

Kallar Kardashian-fjölskylduna hálfvita

Gera allt fyrir frægð og frama Daniel Craig segir að Kardashian-fjölskyldan hafi afsalað sér rétti til einkalífs með öllum raunveruleikaþáttunum um sig.
Gera allt fyrir frægð og frama Daniel Craig segir að Kardashian-fjölskyldan hafi afsalað sér rétti til einkalífs með öllum raunveruleikaþáttunum um sig.
Blæs út Daniel Craig talar um Kardashian-fjölskylduna í nýjasta hefti GQ.
Kardashian-fjölskyldan fær skot úr óvæntri átt, en leikarinn Daniel Craig fer ekki fögrum orðum um raunveruleikaþáttastjörnurnar í nýju viðtali við tímaritið GQ. Þar segir Craig Kardashian-systurnar gera allt fyrir frægð og frama.

„Horfðu á Kardashian-fjölskylduna, þau græða milljónir núna og ég held að þau hafi ekki verið svo illa stödd fyrir. Fólk horfir á þetta og hugsar að það eina sem maður þurfi að gera til öðlast frægð og peninga sé að haga sér eins og hálfviti í sjónvarpinu,“ segir Craig og bætir við að hann mundi aldrei gera þátt um líf sitt því hann vill meina að fjölskyldan hafi afsalað sér rétti á einkalífi.

„Það er ekki hægt að kaupa einkalífið sitt aftur. Þær geta ekki sagt almenningi að láta sig vera þegar þær eru búnar að hleypa áhorfendum inn í stofu og fæða barn í beinni útsendingu. Ég er ekki að dæma þær, eða jú, ég er nú eiginlega að gera það.“

Daniel Craig er þekktur fyrir að vilja halda einkalífi sínu utan fjölmiðla, en hann giftist leikkonunni Rachel Weisz í sumar og fréttu fjölmiðlar ekki af brúðkaupinu fyrr en viku seinna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.