Setja á markað handgerða fylgihluti með karakter 9. desember 2011 09:00 Þær Mariko Margrét Ragnarsdóttir og Ólöf María Ólafsdóttir eru hönnuðirnir á bak við merkið MaryMariko og gera meðal annars hálsmen, hringa og mottur.
Mariko Margrét Ragnarsdóttir og Ólöf María Ólafsdóttir, betur þekkt sem Marý, eru hönnuðirnir á bak við merkið MARYMARIKO. Þær hanna fylgihluti úr endurnýttum efniviði. „Við höfum alltaf haft gaman af því að hanna og skapa með höndunum," segja Mariko Margrét Ragnarsdóttir sem hefur stofnað merkið MARYMARIKO ásamt vöruhönnuðinum Ólöfu Maríu Ólafsdóttur, betur þekkt sem Marý. Stelpurnar kynntust í Stokkhólmi þar sem þær eru búsettar. „Við kynntust hérna úti og komumst að því að við deildum ástríðu og áhuga á hönnun og fallegum handgerðum munum," segir Marý en þær hanna meðal annars mottur, hringa og hálsmen. Marý segir að þeim hafi fundist vanta handgerða fylgihlutalínu á markaðinn í Stokkhólmi en nóg er til af fjöldaframleiddum hlutum í Svíþjóð. Hönnunarheimurinn þar í landi er stór en þær hafa fengið góð viðbrögð. Mariko og Marý vinna allt í höndunum og hluti af hugmyndinni á bak við merkið er að endurnýta efni. „Það er mikil umhverfisvitund í Svíþjóð og Svíar reyna að endurnýta allt sem þeir geta. Við erum mjög hrifnar af þeirri hugsjón og efniviðurinn í okkar hönnun er að stórum hluta efni sem við sönkum að okkar hér og þar," segir Mariko en stúlkurnar hafa meðal annars fengið að kaupa gallaðar flíkur hjá Rauða krossinum í Stokkhólmi og nýta þannig efni sem annars hefði verið hent og styrkja þannig í leiðinni gott málefni. Hringirnir og hálsmenin eru litrík og gróf og segir Marý að þær hefðu viljað búa til hluti sem væru með karakter. Þær sækja innblástur í umhverfið sitt og sænsku náttúruna. „Það má kannski segja að innblásturinn komi frá Reykjavík, Stokkhólmi og ég er ekki frá því að það komi smá Tókýó innblástur frá Mariko en hún fæddist þar og bjó í nokkur ár," segir Marý. Stúlkurnar hafa báðar komið sér vel fyrir í Stokkhólmi. Mary býr með kærasta sínum og vinnur að mörgum fjölbreytilegum hönnunarverkefnum bæði í eigin nafni og fyrir sænsk fyrirtæki. Mariko hefur búið í rúmlega þrjú ár úti ásamt manni og börnum en hún er einmitt í fæðingarorlofi þessa dagana með sitt þriðja barn. „Já, það er nóg að gera á heimilinu en ég gef mér tíma í að hanna og búa til. Við tökum eitt skref í einu en höfum aðeins verið að fikra okkur áfram á hönnunarmörkuðum hérna úti og fengið mjög góðar viðtökur hjá Svíum hingað til," segir Mariko. Hægt er að skoða og kaupa hönnun Mariko og Marý á vefsíðu þeirra marymariko.com og á samskiptavefnum Facebook en stúlkurnar bjóða upp á fría heimsendingu í desember. alfrun@frettabladid.is
Mest lesið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Menning Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Menning Fleiri fréttir Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Synir Britney gengu tískupallinn í París „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Sjá meira