Hallbera Guðný spilar í Svíþjóð næsta sumar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 22. desember 2011 08:00 Fjölmargar íslenskar knattspyrnukonur hafa spilað í Svíþjóð síðustu ár og Hallbera Guðný er að bætast í þann hóp. Mynd/Stefán
Hallbera Guðný Gísladóttir hefur fengið tilboð frá þremur liðum í sænsku úrvalsdeildinni og ætlar að taka næstu vikuna til að fara yfir þau. Hún á von á því að taka ákvörðun fyrir áramót og segir að það liggi nokkuð ljóst fyrir að hún sé á leið frá Val. Hún æfði fyrr í mánuðinum með Örebro, sem Edda Garðarsdóttir og Ólína G. Viðarsdóttir hafa spilað með síðastliðin ár. Hallbera Guðný er þó með tilboð frá tveimur liðum til viðbótar en vill eins og málin standa nú ekki greina frá því hvaða lið um er að ræða. „Ég tel það nokkuð ljóst að ég er á leiðinni út en ég veit ekki enn hvar ég enda," segir hún. Hallbera Guðný er 25 ára gamall leikmaður sem getur bæði spilað á vinstri kantinum eða sem vinstri bakvörður. Hún hefur fest sig í sessi í íslenska landsliðinu sem bakvörður og býst við að spila fyrst og fremst sem varnarmaður í Svíþjóð. „Liðin hafa fyrst og fremst verið að skoða mig sem varnarmann en samt með þeim möguleika að geta spilað líka á kantinum. Þetta er staða sem ég er enn að læra en ég kann vel við hana, sérstaklega ef ég fæ að spila sem sóknarbakvörður. Ég hef mjög gaman af því," segir Hallbera. Hún segist handviss um að þetta sé rétt skref. „Ég hef verið að gera sama hlutinn í nokkur ár í röð og það verður mikill munur að fara í deild þar sem hver leikur er jafn og spennandi."
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira