Sveinbjörn: Liðugari í stuttbuxum Hjalti Þór Hreinsson á Akureyri skrifar 3. febrúar 2011 21:35 Sveinbjörn, í markmannsbuxum.
Sveinbjörn Pétursson skartaði forláta stuttbuxum í leiknum gegn Val í N1-deildinni í kvöld. Hann bætti þar með enn á sjálfspíningarhvatarkenningar um markmenn. Sveinbjörn varði þó vel en hann segist vera sem nýr maður á nýju ári. Hinn markmaður liðsins, Stefán "Uxi" Guðnason, tjáði Vísi að hann tæki á sig stílbrot markmannanna, en Stefán klæddist síðbuxum eins og venjan er. "Ég vissi ekki af þessu hjá Bubba, ég tek þetta á mig og kippi þessu í liðinn næst," sagði Stefán sem lofaði þar með að klæðast stuttbuxum líka í næsta leik. Sveinbjörn sjálfur segir að hann sé liðugari í stuttbuxunum. "Ég er yfirleitt í stuttbuxum á æfingum svo það er ekkert nýtt, en það er annað að vera í þessu í leik. Þetta er svo létt og þægilegt. Það er nýr og breyttur Bubbi eftir áramót, ný klipping og stuttbuxur," sagði Sveinbjörn hress. Hann var líka ánægður með stigin tvö. "Það var haustbragur á þessum leik, en þetta var ærleg áminnig fyrir liðið að það þýðir ekkert að slaka á. Vörnin var frábær í fyrri hálfleik en við slökuðum of mikið á í þeim seinni. En stigin voru góð," sagði Sveinbjörn sem hefur lítið æft undanfarið vegna smávægilegrar tognunar.
Olís-deild karla Mest lesið Leik lokið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða Handbolti Willum nýr forseti ÍSÍ með algjörum yfirburðum Sport Crystal Palace bikarmeistari í fyrsta sinn Enski boltinn Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Handbolti Gleymdu búningum svo bæði liðin eru merkt Stjörnunni Íslenski boltinn Erfitt að sofa eftir tvo sólarhringa á hlaupum Sport Real staðfestir kaupin á Huijsen fyrir 8,7 milljarða Fótbolti Uppgjörið: Þróttur - FH 4-1 | Sjóðheitir Þróttarar völtuðu yfir FH Íslenski boltinn Fleiri fréttir Leik lokið: Valur - Porrino 25-24 | Valskonur Evrópumeistarar fyrstar kvennaliða „Orðið sem ég nota er forréttindapési“ Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn „Í lokin snýst þetta alltaf um okkur sjálfa“ Ótrúlegur Donni kom ekki í veg fyrir tap Aldís Ásta Svíþjóðarmeistari Íslendingar gerðu gæfumuninn í Íslendingaslögum Uppgjörið: Valur - Fram 33-37 | Bláir leiða úrslitaeinvígið EM-riðillinn: Ítalía, Pólland og Ungverjaland Patrekur verður svæðisfulltrúi Guðmundur Bragi frábær í stórsigri Jöfnuðu metin gegn Dortmund Allt opið hjá Degi sem kveður franska stórliðið Birtir gamla mynd af sér í Barcelona-treyju: „Stór draumur að rætast“ Varð að þegja yfir samningnum við Barcelona í margar vikur ÍBV sækir Jakob úr föllnu liði Gróttu Viktor Gísli búinn að semja við Barcelona Dóttir Lauge fæddist löngu fyrir tímann HSÍ ræður Roland Eradze sem markmannsþjálfara Strákarnir okkar í öðrum styrkleikaflokki Nýr forseti norska sambandsins spilaði hjá Þóri og Marit Breivik „Gerðum út um leikinn og ekki yfir miklu að kvarta“ Uppgjörið: Ísland - Georgía 33-21 | Fullt hús eftir stórsigur Ljóst hvaða þjóðir verða með Ísland á EM í handbolta Fínn leikur íslensku landsliðskvennanna dugði ekki Uppgjörið: Porrino - Valur 29-29 | Jafnt í fyrri leiknum „Maður veit alveg hver gulrótin er“ Sjá meira