Rossi spilar ekki aftur fyrr en á næsta ári Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. apríl 2012 22:45 Nordic Photos / Getty Images
Ítalski sóknarmaðurinn Giuseppe Rossi verður frá næstu tíu mánuðina þar sem hann þarf að gangast undir aðra aðgerð á skömmum tíma vegna krossbandsslita. Rossi er á mála hjá Villarreal og sleit krossband í annað skiptið á sex mánuðum á æfingu með liðinu þann 13. apríl síðastliðinn. Rossi þarf reyndar að fara í tvær aðgerðir vegna meiðslanna og fór hann í þá fyrri í Bandaríkjunum á föstudaginn síðastliðinn. Það var tilkynnt á heimasíðu félagsins í dag. Hann mun gangast undir síðari aðgerðina eftir fjóra mánuði en þetta er talin öruggasta leiðin til að náum fullum bata á nýjan leik. Rossi ólst upp í Bandaríkjunum til tólf ára aldurs og flutti þá til Parma á Ítalíu. Þar spilaði hann með yngri liðum félagsins þangað til að Manchester United kom auga á hann og fékk hann til liðsins árið 2004, þá sautján ára gamlan. Rossi lék sinn fyrsta leik með aðalliði United árið 2005 en þeir urðu þó ekki nema fjórtán alls þegar uppi var staðið. Í þeim skoraði hann fjögur mörk. Rossi var svo seldur til Villarreal árið 2007 en þá hafði hann leikið sem lánsmaður hjá bæði Newcastle og Parma. Hann hefur spilað með öllum yngri landsliðum Ítalíu og einnig 27 leiki með A-landsliði Ítala. Hann hefur skorað í þeim sex mörk.
Spænski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira