Andri Þór og Baldock í banni í bikarnum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. júní 2012 13:30 Andri Þór Jónsson í baráttu við Einar Loga Einarsson hjá ÍA á dögunum. Mynd / Vilhelm
George Baldock, miðjumaður ÍBV, og Andri Þór Jónsson, varnarmaður Fylkis, verða fjarri góðu gamni í bikarleikjum liðanna í vikunni. Kapparnir taka út leikbann í leikjum liða sinna. Baldock var úrskurðaður í eins leiks bann af aga- og úrskurðarnefnd KSÍ vegna fjögurra gulra spjald. Baldcock er um leið fyrsti leikmaður efstu deildar karla til þess að næla sér í fjögur gul en hann hefur komið við sögu í öllum sex leikjum ÍBV á tímabilinu. Baldock missir því af viðureign ÍBV og Víkings frá Ólafsvík á Snæfellsnesi á þriðjudaginn í næstu viku. Andri Þór, sem rekinn var af velli með beint rautt spjald í 8-0 tapi Fylkis gegn FH síðastliðinn laugardag, var úrskurðaður í eins leiks bann. Hann missir af bikarleik Fylkis þar sem andstæðingurinn er aftur FH. Leikur liðanna fer fram í Kaplakrika á föstudagskvöld. Þá var Mist Edvarsdóttir, miðvörður Vals, úrskurðuð í eins leiks bann. Mist hefur þegar tekið út leikbann sitt en hún sat hjá í 2-1 sigri Vals gegn KR á mánudagskvöldið. Leikmenn sem vikið er af velli fara sjálfkrafa í leikbann í næsta leik hið minnsta óháð skýrslu aga- og úrskurðarnefndar sem birt er á þriðjudögum. Aga- og úrskurðarnefnd getur þó ákveðið að lengja leikbannið gefi skýrsla dómara tilefnis til slíks.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira