Messi byrjaði nýtt tímabil á því að skora þrennu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 29. júlí 2012 14:30
Argentínumaðurinn Lionel Messi skoraði 73 mörk í 60 leikjum með Barcelona á síðasta tímabili sem er met og þessi besti knattspyrnumaður heims byrjar þetta tímabil líka af miklum krafti. Messi missti af fyrsta leik Barcelona á undirbúningstímabilinu vegna meiðsla en skoraði þrennu í 8-0 sigri Barca á Raja Casablanca frá Marokkó í gær. Alexis (2), Dani Alves, Sergi Gómez og Deulofeu skoruðu hin mörkin. Það er hægt að sjá mörkin í leiknum með því að smella hér fyrir ofan. Öll mörk Messi í leiknum komu á ellefu mínútna kafla í lok fyrri hálfleiks en Barcelona var 5-0 yfir í hálfleik. Í fyrsta markinu slapp hann einn í gegn, í því öðru sundurspiluðu Barca-menn vörnina hjá Raja Casablanca og í því þriðja skoraði Messi í tómt markið eftir óeigingjarna sendingu Alexis. Lionel Messi bar fyrirliðabandið í leiknum enda tóku spænsku Evrópumeistararnir ekki þátt í leiknum. David Villa var heldur ekki með og er enn óvíst hvenær hann getur farið að spila aftur eftir hnémeiðslin.
Spænski boltinn Mest lesið „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Fótbolti Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid Fótbolti Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Fótbolti Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Handbolti Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Handbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira