Hver er þessi Chukwudi Chijindu sem er að slá í gegn hjá Þór? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 12. ágúst 2012 15:45 Chukwudi Chijindu. Mynd/Nordic Photos/Getty
Chukwudi Chijindu skoraði bæði mörk Þórsara í 2-1 sigri á Víkingum í toppslag 1. deildar karla í Ólafsvík í gær. Chijindu hefur skorað fjögur mörk í fyrstu þremur leikjum sínum með Þór og er þegar orðinn markahæsti leikmaður liðsins í sumar. Þórsliðið komst upp í annað sætið með þessum sigri og getur komist upp fyrir Ólafsvíkur-Víkinga með því að vinna leikinn sem liðið á inni. Það er hægt að sjá bæði mörkin hans Chukwudi Chijindu í Ólafsvík í gær með því að fara inn á Sporttv.is en mörkin skoraði hann með sex mínútna millibili í fyrri hálfleiknum. Chijindu skoraði fyrra markið með stórglæsilegu skoti utarlega úr teignum eftir skemmtileg tilþrif og það seinna eftir laglega skyndisókn og stoðsendingu frá Ármanni Pétri Ævarssyni. Það er hægt að sjá svipmyndir úr leiknum inn á Sporttv eða með því að smella hér. Mörk Chijindu koma á 1:12 og 1:50 í þessu myndbandi. Chukwudi Chijindu er 26 ára og 175 sm framherji sem lék á sínum tíma með Chivas í bandarísku atvinnumannadeildinni. Hann kom til Þórsliðsins í júlí og með sama áframhaldi mun hann skjóta liðinu upp í Pepsi-deild karla.
Íslenski boltinn Mest lesið Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Styrktaraðili HM sniðgengur mótið eftir að Rússum var hleypt inn Sport Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Börsungar léku sér að Aston Villa Fótbolti PSG setti nýtt met í kvöld Fótbolti Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport „Þýðir ekkert að vera vera horfa upp á toppinn á Everest“ Sport Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira