Malmö heldur sínu striki Guðmundur Marinó Ingvarsson skrifar 23. september 2012 15:28 Þóra Björg Helgadóttir. Mynd/Stefán
LdB Malmö, lið Þóru Helgadóttur og Söru Bjarkar Gunnarsdóttur, náði fimm stiga forystu á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar með 3-2 sigri á Vittsjö þar sem sigurmarkið kom á síðustu mínútu leiksins. Alls voru þrír leikir í deildinni í dag og komu íslenskar knattspyrnukonur við sögu í þeim öllum. Sara og Þóra léku allan leikinn að venju fyrir Malmö sem komst í 2-0 með tveimur mörkum rétt fyrir leikhlé. Allt benti til þess að Vittsjö næði að stela stigi þegar Sjödahl skoraði í tvígang seint í seinni hálfleik en Þjóðverjinn Anja Mittag tryggði Malmö mikilvægan sigur með marki rétt fyrir leikslok. Malmö er nú með 45 stig, fimm stigum meira en Tyresö sem á leik til góða gegn AIK á þriðjudaginn. Hallbera Gísladóttir lék allan leikinn fyrir Piteå sem tapaði 1-0 á heimavelli fyrir Jitex. Jitex lyfti sér upp fyrir Piteå í deildinni með sigrinum en liðin eru jöfn að stigum í áttunda og níunda sæti, níu stigum frá fallsæti. Vandræði Djurgården á botni deildarinnar halda áfram. Liðið tapaði 2-0 fyrir Umeå á útivelli í dag en Guðbjörg Gunnarsdóttir varði mark Djurgården og Katrín Jónsdóttir lék í vörninni. Djurgården er sjö stigum frá öruggu sæti í deildinni og stigi á eftir AIK í næst neðsta sæti.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti „Hefurðu enga sómakennd?“ Fótbolti ÍBV kærði Hauka: „Hvernig gæti HSÍ verið annarrar skoðunar en reglurnar?“ Handbolti Áður óbirt efni frá heimsókn landsliðsins í vinsælasta þátt Bandaríkjanna Körfubolti Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Enski boltinn Fulltrúar ÍBV og HSÍ hafi mætt seint: „Í mínum huga er þetta algjör þvæla“ Handbolti Ætla flokkarnir að reisa ný heimili fyrir landsliðin? Sport Verstappen heimsmeistari fjórða árið í röð Formúla 1 Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Fleiri fréttir Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Í beinni: Southampton - Liverpool | Rauði herinn marserar áfram Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Sjá meira