Hálft kíló á hönd 15. nóvember 2012 15:21 Ástþór Helgason og Kjartan Örn Kjartansson í Orr fara eigin leiðir í skartgripasmíðinni og er skartið þeirra fjölbreytilegt. MYND/GVA
Þeir Kjartan Örn Kjartansson og Ástþór Helgason hönnuðu hring sem vegur hátt í hálft kíló og er settur áttatíu steinum. Gullsmiðirnir Ástþór Helgason og Kjartan Örn Kjartansson í Orr hönnuðu hring sem er nú ásamt fleiri gripum frá þeim félögum til sýnis á skartgripasýningunni Láði og legi (Water and Earth) í Finnlandi. Hringurinn vegur næstum hálft kíló og er með áttatíu steinum. "Í hönnun okkar leggjum við upp með að gera það sem okkur langar til," segir Ástþór. "Þessi tiltekni hringur stækkaði í smíðinni. Hann átti aldrei að verða svona stór en við leyfum okkur að breyta hönnuninni þó við séum byrjaðir að smíða. Þegar við byrjum á einhverjum grip vitum við ekki hvernig útkoman verður. Okkur finnst það koma best út, að vera ekki niðurnjörvaðir. Þegar við stofnuðum Orr fyrir tíu árum var það eiginlega inni í stofnsamningnum að við myndum aðeins gera það sem okkur langaði til. Ef það gengur ekki upp þá hættum við frekar." Hringurinn stóri er hluti af línu sem byrjaði sem hálsmen. Steinarnir í hringnum eru allir lausir og það er erfitt að átta sig á hvernig hann lítur út í raun þegar hann er skoðaður á mynd. "Við viljum að fólk fái að koma við hönnunina okkar. Allir gripirnir sem eru á sýningunni í Finnlandi núna eru hreyfanlegir á einhvern hátt og það er mikilvægt að koma við þá og prófa þá til að skilja hvernig þeir virka." Þegar Ástþór er spurður hvort ekki sé þreytandi að vera með svo stóran og þungan hring segir hann að það venjist. "Sumar konur ganga alltaf á háhæluðum skóm og það venst líka. Við höfum smíðað fullt af gripum sem við héldum að myndu aldrei seljast en hafa svo gert það. Við smíðuðum til dæmis átján karata gullhring fyrir átta árum sem var skreyttur með nammi í stað steins. Hringurinn kostaði milljón og fylgdu fimm þúsund nammistykki með sem var svo hægt að skipta út. Mjög góður "díll"," segir Ástþór og hlær.
Mest lesið Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Lífið Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Lífið Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Lífið Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Lífið Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Lífið Sassy fagnar 5 ára afmæli og stórum kaflaskiptum Lífið samstarf Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Lífið Fyrsta mynd umdeildrar gervigreindarleikkonu í framleiðslu Bíó og sjónvarp Geirvörtur og latex vekja athygli í París Tíska og hönnun Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Fleiri fréttir Geirvörtur og latex vekja athygli í París Osaka best klædd á Wimbledon Krýndur tískukóngur fótboltans Ókunnug mamma ekki sátt með kaupin Synir Britney gengu tískupallinn í París „Kjóllinn markaði nýtt upphaf í mínu lífi“ „Hér er ég tólf árum seinna, enn að hugsa um þetta“ Hannaði frægasta brúðarkjól ársins Prjónarar missa sig yfir ponsjói Jökuls Dóttir Obama í íslenskri hönnun Heitustu tískutrendin í sumar „Það má herma“ Stelpurnar í Kjólum og konfekti spá fyrir um úrslit HM „Ég sef í gallabuxum“ Áslaug kvaddi í hvítu útskriftardragtinni „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Sjá meira