Evening Standard: Falcao fer til Chelsea og Sturridge til Liverpool Arnar Björnsson skrifar 20. desember 2012 11:15 Radamel Falcao Nordicphotos/Getty
Kapphlaupið um feitustu bitana á fótboltamarkaðnum verður spennandi næstu daga. Evening Standard fullyrðir að Roman Abramovic eigandi Chelsea kaupi hinn sjóðheita Kolumbíumann, Radamel Falcao. Chelsea þarf að borga Atletico Madrid 48 milljónir punda fyrir Falcao eða sem nemur um átta milljörðum íslenskra króna. Félagið ætlar að bjóða honum 175 þúsund pund, um 36 milljónir króna, í vikulaun. Hann verður því á sömu launum og Fernando Torres hjá Lundúnaliðinu. Blaðið fullyrðir að menn frá Chelsea hafi þegar farið til Madríd til þess að semja um kaupin. Lundúnaliðið ætlar að kaupa tvo til þrjá leikmenn að auki. Eftir leiki helgarinnar á Spáni verður hálfsmánaðarfrí og þann tíma ætlar Falcao að nota til að skoða sig um hjá Chelsea. Lundúnaliðið ákvað í sumar að treysta Fernando Torres fyrir markaskoruninni og hætti við að kaupa Falcao. Atletico Madríd vill alls ekki selja hann til erkifjendanna í Real Madríd og því er Chelsea miklu betri kostur. Sjálfur er Falcao sagður vilja klára leiktíðina með Atletico. Talið er að Chelsea fái tólf milljónir punda, um tvo milljarða íslenskra króna, fyrir Daniel Sturridge sem reiknað er með að gangi til liðs við Liverpool. Chelsea gefur þó ekki grænt ljós á vistaskiptin fyrr en félagið kaupir framherja í staðinn. Sturridge kostaði 6,5 milljónir punda þegar hann kom frá Manchester City árið 2009. Hann er búinn að skora 24 mörk í 96 leikjum en í tæpum helmingi leikjanna hefur hann komið af varamannabekknum. Í fæstum leikjanna hefur hann spilað í sinni uppáhaldsstöðu sem framherji.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Åge Hareide látinn Fótbolti Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Segir fjórðung í bók Óla ósannan Íslenski boltinn Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Stjarnan - Álftanes 108-104 | Unnu grannaslaginn naumlega Körfubolti Fleiri fréttir Calvert-Lewin hættir ekki að skora Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Slot fámáll um stöðuna á Isak Gleði og sorg í sigri Liverpool Dramatík er Broja reyndist hetja Burnley Haaland frábær er Manchester City komst á toppinn Andri Lucas skoraði í langþráðum sigri Blackburn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Ekkert fararsnið á Guardiola sem segir að City verði að vera undirbúið Tíu bestu mörkin úr leikjum Liverpool og Tottenham Salah bað samherjana afsökunar Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Jóga og pílates lykillinn að snöggri endurkomu Fantasýn: „Hann setti allt á 3 og það kom upp 19“ Alexander Isak fékk sænska gullboltann „Salah líkaði ekki að vera í skugganum af Isak og Wirtz“ Amorim vill Neves Benti á hinn íslenska Dan Burn Lést á leiðinni heim úr fótboltaleik Forsætisráðherrann hótar Roman Abramovich og segir að „klukkan tifi“ „Sýnum kvennaíþróttir af því að þær eru frábærar“ Snéri aftur í fótbolta eftir 35 ára hlé: „Kalla mig Jackie Grealish“ Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Ungstirnið skallaði meistarana áfram Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram City sagt ætla að keppa við Liverpool og United um Semenyo Man United ósátt við Marokkó og FIFA Sápan trolluð: „Þetta er þessi klikkhaus með röddina“ Stjarnan fór í dulargervi: Setti stuðningsmann United á óþekka listann Sjá meira